Bóndinn er flottur í mogganum í dag. Þótti þó skrítið að lesa að þau hjónin búi við mikla “ómegð” svona miðað við að annars staðar í greininni stóð að reksturinn á fyrirtækjunum gengi vel :) Ég vona að blaðamaðurinn hafi ruglast á ómegð og barnmergð!

En þar fæddist prinsessa í gær, um 3.300 gr og 52 cm og skv. SMS sem barst gullfalleg eins og pabbinn…
Óska Stjórnmálafræðingi og fjölskyldu til hamingju með snúlluna :-) , hlakka til að sjá þau í sumar.
-Löggan

Í hvaða mynd er þetta?

-Löggan

… þegar uppþvottavélin á heimilinu bilar?
a) vaskar upp (hvernig á aftur að gera það)
b) hendir öllu óhreinu leirtaui og kaupir pappadiska
c) fer bara með fjölskylduna út að borða í öll mál?

-Löggan

Og eigðu góðan dag !

kv.Hjúkkan

Og eigðu góðan dag
kv. Löggan

Þetta er búinn að vera alveg ótrúlegur dagur. Hann byrjaði með atvinnuviðtali. Svo var ég á leiðinni í vinnuna þegar dóttirin hringdi og sagðist hafa fengið 9,2 á lokaprófi í stærðfræði. Þegar ég kom í vinnuna hringdi síminn minn aftur og mér boðin vinnan sem ég sóttist eftir. Og síðast en ekki síst fór sonurinn í ofnæmispróf og er laus við mjólkurofnæmið.

Geta dagarnir orðið betri?

Um leið og ég óska bóndanum og hennar fjölskyldu til hamingju með litlu snúlluna þá ætlaði ég að láta ykkur vita af því að ég ætla að fylgja henni og stjórnmálafræðingi eftir og bæta við einu “ellibarni” í haust ef allt fer að óskum :-)
Er komin ca.12/13 vikur og sett í nóvember, þannig að það er nokkuð ljóst að þessi hópur slær ekki slöku við!
Hvað er eiginlega langt síðan við höfum komið saman án óléttu eða brjóstagjafa (var það ekki bara á 1 árs fermingarafmælinu síðast :-) )
Kv. Löggan

Til hamingju með daginn kæru bekkjasystur, í dag eru 20 ár síðan við klæddumst hvíta kirtlinum:)

Held uppá daginn með köku og  kaffi:)

Bara að þakka Stjórnmálafræðingnum og fjölskyldu fyrir komuna í gær, þetta var meiriháttar gaman og við hlökkum bara til að þetta verði endurtekið sem fyrst aftur.
Knus frá þeim í Odense.
Ps. hlakka til að sjá ykkur hinar svo í Águst…;) það verður sko fjör!