You are currently browsing the monthly archive for maí 2006.
Ég fylgdi ömmu á kjörstað á laugardaginn. "Ætli þeir bíði ekki eftir mér með gullskó!" sagði amma og átti þá við sjálfstæðismenn sem ætla nú aldeilis að fara að hugsa vel um gamla fólkið. Hún vissi ekki að þeir voru að meina að þeir ætluðu að ná í alzheimersjúklinga á elliheimilið og láta þá merkja við D!
Mikið verður nú gott að búa í Reykjavík nú þegar ný borgarstjórn hefur verið mynduð. Ég þarf ekki lengur að skutla á lúðrasveitaræfingu, Villi ætlar að sjá um það. Ég þarf ekki að pirrast á klæðaburði unglingsins mikið lengur því framsóknarskrípið (sem fékk varla meira en 7 atkvæði) lofaði skólabúningum á Reykvísk börn. Svo hlakka ég auðvitað ógurlega til að fá alla peningana sem ég á í Landsvirkjun en mér skilst að þeir verði bara lagðir inn á reikninginn minn eftir að fyrirtækið hefur verið selt. Kannski nota ég þá til að fara í burtu og koma ekki aftur fyrr en eftir 4 ár, þegar verður vonandi kominn önnur borgarstjórn.
Fyrir síðustu helgi var það "Hard roch halliluja" sem rokkaði feitt. Nú er það Blönduóslöggulagið
http://rokk.is/mp3/p/ponkbandid_fjolnir_blonduosloggan.mp3
Hlustið og njótið!
Ps. bóndinn á ekkert sérhorn (categories) - er búið að reka hann af síðunni fyrir lélega frammistöðu???
Góða helgi
Kv. Blönduóslöggan
Eftir að ég heimsótti nágranna minn Hjúkkuna í fínu nýju íbúðina um daginn greip mig einhver óeirð. Í gær fékk ég svo hausverk dauðans. Í dag fattaði ég loksins hvað amaði að mér. Cold Turkey og ekkert annað. Í dag brunaði ég því í Húsasmiðjuna, keypti málningu og málaði einn vegg. Og er orðin ég sjálf á ný.
-Þroskaþjálfinn
Lengi getur vont versnað!
Nú er 23. maí og í Húnavatnssýslum er 10 cm jafnfallinn snjór, bílstjórar lenda í vandræðum á þjóðveginum og meira að segja foreldrar við leikskólann, allt að verða ófært þar.
En fyrst þetta hefur farið versnandi síðustu daga, þá getur þetta varla annað en batnað. Sé í Fréttablaðinu að það á að vera 1°c hiti í dag, 2°á morgun og 3° á fimmtudaginn. Á laugardaginn er svo spáð hitabylgju (ja, svona allavega á mælikvarða veðursins í dag) en þá á að vera 5°hiti!!!
Við hljótum nú að fá langt og gott sumar út á þetta.
Muna að kjósa á laugardaginn og kjósa rétt (svo verður hver að svara fyrir sig hvað er rétt í þessum málum).
Sennilega er þetta eitt stysta sumar sem ég hef upplifað!
Í morgun var hiti 1°c og í hádeginu var snjókoma í nokkrar mínútur. Brrrrrrrr!!!
Ef þetta heldur svona áfram, þá er nokkuð víst að nettilboð flugfélaganna verður nýtt í sumarfríinu.
Ef einhver ykkar er á ferðinni á sunnudag/mánudag þá er kaffiboð hjá prinsinum mínum sem verður 5 ára
Kv. Löggan
Vonandi er sumarið komið því ég elska íslenskt sumar. Frábært að rúlla sér um bæinn á línuskautum og enda svo ferðina í sundlaugum borgarinnar og baða sig í sólargeislum. Freknurnar spretta fram og þreytan líður úr líkamanum.
Ekki skemmir fyrir að vera í vaktavinnu og eiga frí á þessum fínu sóladögum.
Hjúkkan
Í gær hófst átakið mikla sem er búið að tala um í nokkra mánuði. Bumban í sögulegu hámarki og formið lélegt.
Dagurinn byrjaði vel, serios í morgunmat, hjólað með krakkana í leikskólann og svo í vinnuna. Gras og ávextir megin uppistaðan í fæðunni yfir daginn.
Þegar heim kom eftir vinnu hélt átakið að sjálfsögu áfram og hollustan í fyrirrúmi. Í kvöldmat var t.d. kartöflusúpa frá "manni lifandi" (reyndar svolítið lítill skammtur) og vatn með.
Svo kom kvöldið – mín fór á fund og borðaði fullt af kexi og lagkökum. Kom svo heim og hitti manninn sem byrjaði líka í átaki í gærmorgun og var jafn svangur og konan hans eftir alla hollustuna.
Stór pizza og franskar pöntuð og étið með bestu list með Survivor (af hverju lét Terry Danielle ekki hafa falda goðið – nískupúki!)
Semsag, átakinu mikla lauk kl. 21:15.
Og hananú!!!!!!!
Kv. Löggan
Ekki seinna en á morgun þarf ég að fara í kirkjuna og panta pláss í fermingu fyrir unglinginn á heimilinu. Næsta árið get ég svo skipulagt í rólegheitum hvernig veisluhöld munu fara fram og jafnvel byrjað að safna hveiti, sykri, kertum, gosi og fleiru sem er gott að eiga við slíkt tilefni. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan ég gleypti hluta af líkama krists og skolaði niður með blóði og fermingarfræðslan virðist nú fara fram í formi kvikmyndasýninga og húllumhæ. Það sem börnin missa af að fá ekki að hlusta andaktug á Sérajón í stofunni heima hjá honum.
Og meðan ég man. Passið ykkur á að lenda ekki í því að keyra fullar. Fólk virðist nefnilega geta lent í því án þess að fá rönd við reist þessa dagana.
Þjálfinn.
Ferðahugurinn lætur ekki á sér standa. Ég var að kíkja á hótel í Köben og líst mjög vel á Ibis hótelin þar. Þau eru þrjú og öll í miðbænum. Kíkið á http://www.ibishotel.com/ibis/index.html
Þjálfinn.
Þetta er bein útsending frá heimili húsmóður.
Ákveðið hefur verið að bóka ferð sem fyrst til Kongsins Köben. Hver og ein pantar fyrir sig, brottför 31.ágúst að morgni og heimkoma 3.september að kveldi með Iceland express.
Gisting á ***** hóteli í hjarta borgarinnar.
Viðræður eru við guide um að fylgja okkur um helsu menningarperlur Köben og hugsanlega að leigja bíl til að komast skjótt á milli verslana.
Einnig hefur verið ákveðið að fara saman í dekur fyrsta laugardaginn í mars 2007. Takið frá þennan dag. Búið að panta borð eftir dekrið á Sjávarkjallaranum kl.20:30. Makar velkomnir með í matinn. BANNAÐ AÐ VERA ÓLÉTT.
Hjúkkan, húsfrúin, neminn og þroskaþjálfinn.
