You are currently browsing the monthly archive for júní 2006.

Vill bara minna á ferðasjóðinn okkar.  Júní er að verða búinn og júlí að byrja.

Var að senda ykkur yfirlit í tölvupósti.

Hjúkkan og gjaldkerinn. 

Halló allar sem kíkið hér inn ef það er e-r sem gerir það ennþá!

Langaði bara að ath hvort það væri e-r áhugi fyrir útilegu um helgina, við erum að spá í að skella okkur í Húsafell, bara svona frá lau til sun. Ansi góð spá…;

http://www.vedur.is/vedrid/myndspar/4150.html

Neminn

Ég þarf ekki lengur að óttast atvinnuleysi eftir fæðingarorlofið. Ég verð deildarstjóri. Mikið verður karlinn feginn þegar ég get eytt stjórnunarþörfinni á aðra en hann.

Kannski ég skipti um dulnefni á blogginu þegar ég hef störf…

Nemi: Ég veit hvað klikkaði þegar þú varst að reyna að posta, það þarf að ýta á publish en ekki save :)  

Einu sinni fékk ég bassaæði, keypti mér bassa æfði mig og varð alveg flink. Núna kann ég ekki neitt. Ég hef líka fengið hekl æði, heklaði 10 húfur og annað eins af sjölum auk þess sem ég eyddi örugglega fimmtungi af mánaðarlaununum mínum í garn þegar ég heklaði rúmteppið…. Sudoku æði, krossgátuæði, irc æði, bloggæði, fuglaæði…  jamm. Í gær prjónaði ég bleiubuxur eftir uppskrift. Nú er ég komin með prjónaæði og á örugglega eftir að eyða mörgum þúsundköllum í garn og prjóna alls kyns óþarfa áður en það æðið gengur yfir. Mig vantar ódýrt æði…

Fyrir 4 árum fór ég með minn eldri til ljósmyndara.  Gekk inn í eitthvað "þrennudæmi", mæta með krílið 3 sinnum á jafnmörgum árum og borga 10.500 kr. í hvert sinn.

Ég mætti með gríslinginn í þessi 3 skipti en samningurinn breyttist eitthvað hinumegin frá; borgaði 10.500 í fyrsta sinn, 13.500 í annað sinn og svo 15.000 í þriðja sinn. 

Ekki hægt að gera upp á milli barna svo að sú yngri var drifin í myndatöku ársgömul líka.  Mamman gleymdi reyndar að spyrja um verð þegar hún pantaði en gerði ráð fyrir að borga 3*15.000.   Aldeilis ekki!  Þegar ég sótti myndirnar var það 25.000 fyrir fyrsta sinn og svo 2*15.000 kr.

Nú við mættum vor í töku 2 með prinsessuna og fyrir nokkrum dögum fékk ég hringingu að myndirnar væru tilbúnar.

"25.000" sagði afgreiðslukonan

"Nei, þetta er önnur taka og þá er þetta 15.000" sagði pirraða mamman.

"Nei, nú er það 25.000 hver taka" útskýrði afgreiðslukonan

"#%#%#" hugsaði mamman og sagði svo að þetta væri nú ekki alveg eðlilegt, hækkun í hvert einasta sinn + að ég hafði nú vit á því að kanna verðið á heimasíðu ljósmyndarans áður en ég pantaði síðast.

"Það er nú ekkert að marka heimasíðuna okkar, þetta er bara kostnaðarverð miðað við allar hækkanirnar í þjóðfélaginu..bla, bla, bla ….., en fyrst það er svo, þá læt ég þig borga 15.000".  " En þetta eru miklu fleiri myndir en eiga að vera og….. bla, bla"

TAKK!!!

Veit að það hafa verið hækkanir á undanförnum 4 árum, en HALLÓ!

Miðað við þetta, þá ætti ég að greiða 75.000 fyrir myndatökuna af gríslu, en ef hann hefði haldið samkomulagið með gríslinginn, hefði það verið 32.000!  Munar frekar miklu!

Annars bara allt gott að frétta af kúrekum norðursins – bíðum spennt eftir að komast í sumarfrí, þó stutt verði:-)

Nú get ég ekki lengur skoðað þessa síðu án þess að blogga. Komin með samviskubit yfir þessari leti. Ég veit reyndar ekki hvar ég á að byrja, reyni að hugsa aftur í tímann og stikkla á stóru.

Stærsta fréttin er að ég held fluttningurinn. Við litla fjölskyldan erum búin að flytja okkur um bæjarfélag og komin á Nesið. Drifum í því einn góðan laugardag (laugardagur til lukku) og skutluðum búslóðinni í nýju í búðina. Það var ekki lengi gert. Stutt að fara og hörkuduglegt fólk að bera kassa. Komum okkur þokkalega fyrir og líður mjög vel. Eina sem mætti kannski laga er eldhúsið, væri skemmtilegara að hafa eldhúsinnréttingu :) En það fer nú að rætast úr því. Innanhúsarkitektinn er búinn að klára sína vinnu og nú er bara að panta efni og setja upp.

Við stjórnmálafræðingurinn skelltum okkur í húsmæðraorlof í síðust viku til Kongsins Köben þar sem við hittum dönsku konuna ( eins og áður hefur komið fram). Mjög gaman að hitta hana. Hún rölti með okkur í 2-3 búðir ( ekki H&M !) og svo sátum við á Nyhavn og Kongenshave og drukkum bjór og hvítvín fram á kvöld. Þá var ákveðið að fara á Tabasbar þar sem við héldum aðeins áfram í hvítvíninu. Nice. Við stöllur komum  úthvíldar heim úr sólinni og erum orðnar spenntar yfir næstu ferð. Aldrei að vita nema við bætumst við !!!!

Nóg að gera í vinnunni þessa dagana. Er komin í 40% næturvinnu og  meiri helgarvinnu og líkar bara mjög vel. Er samt farin að hlakka til að komast í langt frí 24.júlí.

Reykjavíkurdeild kvennfélagsins hittist á kaffihúsi í fyrrakvöld og var ákveðið þar að næsti fundur verður hjá hjúkkunni og mun ég skella honum á um leið og eldhúsið er komið upp.

Hafið það gott í rigningunni á morgun/í dag.

"hæ hó jibbí jei og jibbi jei,það er kominn 17.júní "

Hjúkkan

Loksins kem ég með smá input hérna.

Hitti þrælhressar kvensur í köben í síðustu viku og skemmti mér konunglega.  Ég þurfti sko heldur betur á þessu að halda. 

Mér datt í hug að í danmerkur ferðinni ykkar í haust hvort það væri ekki áhugi á að koma til mín til Odense fyrst og svo myndi ég koma með ykkur til köben og njóta lífsins.  Það er nú kominn tími á saumaklúbb hjá mér, ekki satt?  Það getur annað hvort verið 2 nætur hjá mér og 1 í köben eða öfugt.  Hvað ætlið þið annars að vera lengi?

Hlakka allveg rosalega mikið að sjá ykkur.

Kveðja Danska konan í útlegð ;)

Mig langar á kaffihús með ykkur í vikunni!

Hitti starfsmannastjóra í morgun og barðist í gegnum brjóstagjafaþokuna. Nú á æðsti yfirmaður eftir að ákveða hvort hann þori í hugsanlegt stríð við fullnuma þroskaþjálfa sem sækjast eftir starfinu. 

Ef ég fæ ekki starfið er það allt í lagi. Ég er nefnilega með hugmynd… 

Settist niður í gær þegar gestirnir voru farnir og kíkti á sjónvarpið. 

Er ekki skjár 1 farinn að sýna Beverly hills og Melrose place frá upphafi.  Dásamlegir þættir.  Á einhverjar minningar um að hafa legið yfir þessum þáttum fyrir örfáum árum síðan á grunnskólaárunum.  Þegar ég horfði svo á þetta í gær var fyrsta hugsunin " fannst manni Brandon virkilega sætur" – maðurinn er með sítt að aftan og krullur!!!  Ekki laust við að Andrea Suckerman, sem manni þótti manna hallærislegust á sínum tíma,  eldist best í þessum þáttum!

Og Melrose – sáuð þið outfittið á liðinu í eróbikkinu?  Strekktir glansgallar í neonlitum, nærbuxur utan yfir leggings buxur; algjör snilld.

Ég ætla sko að horfa á alla þættina og skemmta mér vel yfir þessu í sumar!

Reyndar toppaði Skjár 1 kvöldið með einhverjum nýjum þætti sem heitir South beach, held ég.  Annað hvort hefur þessi þáttur verið tekinn upp 1986, eða höfundurinn fastur á árinu 1986 – diskótekið með blackligth, tónlistin í tak við það: guðdómlegt!!

Kveðja frá konunni sem getur ekki horft á "normal" þætti eins og Já og Sex and the city!!!!