You are currently browsing the monthly archive for júlí 2006.
Þá er komið að þroskaþjálfanum okkar – afmæli í dag!
Óska henni innlega til hamingju með daginn og veit að hún á eftir að eiga góðan dag í faðmi fjölskyldunnar.
Stórt knús!
Kv. Löggan
ps. það er einn kaninuungi enn eftir – mátt sækja hann þegar þú ert næst á ferðinni (var ég ekki búin að lofa þér einum í afmælisgjöf, híhíhí!!!)
Í nótt fæddi húsfrúin litínn strák, dökkhærður eins og pabbinn, 51 cm og 3220 gr.
Til hamingju kæra fjölskylda.
Hlökkum til að sjá mynd.
Hjúkkan og fjölskylda
Undanfarnar helgar hefur mér verið komið á óvart af vinkonum mínum og ég dregin út í gæsastand. Gaman gaman……….eða hvað.
Gæsun 1
Ég var stödd á Holtastígnum hjá múttu á laugardagseftirmiðdegi, á fullu að hafa til dýrindismat sem ég gat ekki beðið eftir að borða, og á leiðinni í salinn um kvöldið til að raða upp borðum ofl. Allt í einu koma 3 vinkonur mína ( þ.a.m. stjórnmálafræðingurinn) í heimsókn að ég hélt. Mér fannst svo sniðugt að þær kæmu allar í einu, hélt að þær hefðu bara hist fyrir utan fyrir tilviljun. En það var víst ekki tilviljun, þetta var skipulögð gæsun hjá þeim skvísum. Ég átti að koma með þeim út og eina sem ég átti að hafa með mér var joggingbuxur !!!! Ég byrjaði á að fara í dekur á snyrtistofuna og eftir það var tekinn rúntur um bærinn og stefnan tekin á Ísafjörð. Þar sem ég var ekki enn búin að nota joggingbuxurnar, en komin í þær, var ég mikið að hugsa um hvaða tilgangi þær gengdu. Hugmyndirnar sem komu upp voru erobiktími hjá Söllu eða körfuboltaleikni með Sissu en það var ekki rétt hjá mér. Ég var nefnilega á leiðnni á jetsky ! Úff ég fékk í magann þegar að ég sá það, eitthvað sem ég hef aldrei prufað. En þetta var geggjað. Er sko til í að prufa þetta aftur. Eftir sprettinn á jetsky fórum við aftur í Víkina í grill og sötr og enduðum kvöldið á Kjallaranum þar sem stuðið var gríðarlegt. Þökk sé okkur stuðgellunum.
Gæsun 2
Þessi gæsun kom mér líka skemmtilega á óvart. Þenna dag var ég heima í stofu með kallinum, brósa og litlu snúllu á leið út að borða og svo í íbúðarstúss. Nei nei, það var allt plat því Dallasgellur mættu til mín kl.18,surprise, með hvítvín og videotökuvél. Þær drógu upp poka með dressi sem ég átti að klæðast : appelsínugular netasokkabuxur, rauður glimmerkjóll með skikkju, rauð stígvél og hárkolla. Ég var glæsileg í þessu og til í stuðið. Þær sögðu að ég mætti fara inn og mála mig ef ég vildi og þegar að ég kom aftur fram þá fékk ég að vita að dressið var bara djok og ég mátti fara í mín föt. Eina sem ég þurfti að vera í var stuttermabolur með mynd af Sálinni sem ég átti að láta árita á Sálarballi á Nasa
Við fórum svo út að borða á Tapas, æðislegur matur, og löbbuðum svo á Thorvaldsen í einn mohitos fyrir Sálarballið. Á leiðinnii frá Tapas fórum við auðvitað yfir Ingólfstorg þar sem ungir piltar voru á hjólabrettum og vildu endileg að við prufuðum. Ég hafði nýlega skoðað mynd af mér hjá þroskaþjálfanum þar sem ég var á hjólabretti þannig að ég sló til. Sýndi nokkrar takta en endaði með því að detta fram fyrir mig og setti hendurnar fyrir mig. Ég fann aðeins til í úlnliðnum þannig að á Thorvaldsen fékk ég teygjubindi til að fá smá stuðning svo ég gæti nú stjúttað almennilega með Stebba og félögum. Á ballinu kláraði ég auðvitað mitt verkefni, fór baksviðs og fékk strákana við að skrifa á bolinn minn ( reyndi líka að fá þá til að spila í Boló 5.ágúst í stað 18.ágúst, gekk ekki alveg) en fór svo fljótlega heim því verkirnar í hendinn voru farnir að aukast. Þegar heim var komið sendi kallinn mig beint upp á slysó þar sem ég var dópuð upp, mynduð og sett í gipsi því verðandi brúður er brotin takk fyrir !!!!! Á að vera í gipsi í 3 vikur, til 4.ágúst, og verð ekki degi lengur. Nema sauma á það perlur og appelsínugulan borða
Kveð að sinni, þetta blogg hefur tekið mjög langan tíma að skrifa. Vinstri hendin ekki alveg nógu snögg ( “þú heppin að þetta var vinstri ” – setning sem ég hef heyrt ansi oft síðustu daga. Ég líka heppin að vera vinstrihent !!!!)
Hjúkka í veikindafríi.
…nú Búkolla mín ef þú ert nokkurs staðar á lífi!
Allar að skrifa eina setningu til að sýna lífsmark
Fór til Reykjavíkur á föstudaginn með DMR að sjá Hryllingsbúðina. “Okkur” leist ekkert á það þegar þessi planta fór að dilla sér og öskra svo að við fórum bara út í hléinu og hlustuðum á restina á leikritinu á geisladiski.
Urðum að sjálfsögðu að koma við hjá Hjúkkunni í nýju íbúðinni. Verður glæsileg þegar innréttingin er komin upp-til hamingju með íbúðina! DM fannst mjög merkilegt að heyra að það væri til bíómynd um húsið hennar Hjúkku. Þegar við komum heim mæðginin á laugardaginn lögðumst við í rannsóknarvinnu og horfðum á Jón Odd og Jón Bjarna
Niðurstaða; þeir áttu heima í næsta stigagangi við Hjúkkuna. Ef Jói spói spýturass býr þarna ennþá, þá er hann í næstu íbúð, en í næsta stigagangi. Jón Oddur og Jón Bjarni eru þar fyrir ofan og Hjúkkan myndi sennilega heyra í “graðhestamúsikkinni” hjá Önnu Jónu ef hún væri ekki flutt að heiman. Búið að rífa kofann sem þeir smíðuðu fyrir utan svalirnar, en rólurnar eru ennþá.
Og…. þar sem ljótu krakkarnir, sem var ekki búið að fræða voru að gera grín að Selmu, slóust við Tvíbbana og Lárus – það er tekið upp beint fyrir utan gömlu íbúðina í Sörlaskjólinu!!! Merkilegt
Niðurstaða rannsóknarvinnunar er sú að það er ekki endilega vesturbærinn sem er aðalatriðið hjá Hjúkkunni og hennar manni, heldur bara að íbúðin sem þau kaupa/búa í hafi komið fram í myndinni um Jón Odd og Jón Bjarna.
Svo að ef/þegar þau flytja út á land, reyna þau örugglega að kaupa húsið sem sumarbúðirnar voru í
