You are currently browsing the monthly archive for ágúst 2006.

Vá stelpur, ferðalagið er að bresta á! Ferðahugurinn búinn að yfirtaka allt, get ekki einbeitt mér í vinnunni… og ég sem er að fara á fund með geðlækni. Sem betur fer er ég ekki umræðuefnið á fundinum, annars myndi hann örugglega greina hjá mér athyglisbrest í dag ;)

Jæja þá er ég að komast í ham! Búin að tala við sérlegan tískuráðgjafa minn sem skrifaði fyrir mig langan lista af ómissandi klæðnaði og fylgihlutum. Því hef ég ákveðið að taka lestina til Malmö á föstudaginn en þar ku vera HM geggjaðra en í Köben og ódýrara. Ferðin tekur ca korter :)

Verslunaróðar kvenfjelagskonur, skora á ykkur að íhuga að taka þátt í kaupæðinu…

Kveðja, hin verðandi tískudrós ;)

Greinilegt að ég hef ekki bloggað lengi. Er eitthvað klúðurslegt hjá mér, en ég reyni bara aftur.

Það er sem sagt kominn hugur í mína. Er búin að pakka niður í huganum og sé mig alveg fyrir mér á Strikinu með hvítvínsglas og kannski einn innkaupapoka hjá mér þar sem ég sit á kaffihúsi og fylgist með mannlífinu. Eftir viku verðum við komnar til Kongsins Köben.

Ef þið vijið fá söfnunarpeninginn ykkar fyrir ferðina sendið mér þá mail með reikningsnr. sem ég á að leggja inn á .

Hjúkkan

Jæja, þá er maður kominn heim úr útlandinu.  Virkilega góð ferð og alveg æðislegt að komast í smá sól og gott veður, þó ekki sé nema í viku. 

Heyri á þeim sem maður hefur heyrt í og hitt að það hefur verið frábær helgi fyrir vestan,  frábær athöfn og veisla og gleði langt fram eftir nóttu.

Fékk heimsókn í gær frá Stjórnmálafræningi og fjölskyldu sem var mjög gaman.  Hún sagði mér að það hefði komið til tals fyrir vestan hvort að hópurinn ætti ekki að fara drífa sig í utanlandsferð eins og þegar við fórum til Prag hér um árið.  Þrítugsferðin okkar til New York féll niður vegna óléttu og brjóstagjafa svo að það er spurning að vera snemma í því að velja helgi EFTIR ÁR (næsta haust) svo að allar séu búnar að venja af brjósti og engin búin að leggja í aftur :-) .  Hvað segið þið um það?

Skilst að Boston hafi verið heit í umræðinni, mér líst vel á það.  Ættum að vera snemma í því að athuga með flug, man að þegar við vorum að spá í NY gátum við fengið flugið á innan við 30.000 á mann með sköttum með því að panta með held ég 8 mán. fyrirvara. 

Svo að, ef ykkur líst vel á, þá legg ég til að við förum að skoða flugið strax eftir áramót (svona rétt áður en jóla-vísa/euro reikningurinn dettur inn um lúguna) til þess að ná góðu flugi.  Held að Hjúkkan sé sjálfkjörinn gjaldkeri fyrir þessa ferð ef við viljum leggja inn mánaðarlega eins og fyrir DK ferðina – já og danska konan KEMUR að sjálfsögðu með líka í þessa ferð (er ekki alltaf flug frá DK til Boston?).

Kv. Löggan (sem er nýlent frá Krít og er á leiðinni í 2 ferðir til DK á næstu vikum en verður samt að byrja á að skipuleggja næstu ferð…….. :-)

Fór um helgina í Víkina fögru þar sem ég sá voða huggulegt par gefið saman í fermingarkirkjunni minni. Áður en athöfnin byrjaði sátum við stelpurnar eins og púkar á fjósbita á kirkjuloftinu og pískruðum og flissuðum. Þá gleymdi ég því að ég væri orðin 31 og er eins og ný manneskja á eftir. Brúðurin var eins og ævintýraprinsessa og ef ég væri aðeins minni töffari hefði sjálfsagt dottið tár á manneskjuna fyrir neðan mig… Veislan var fyrsta flokks, og kakan… umm!

Á meðan við skötuhjú vorum að brúðkaupast var sonurinn í góðum höndum hjá Húsfrúarmömmu. Þar voru allir víkararnir sem ekki var boðið í brúðkaupið að dást að honum og leika við hann. Enda lærði hann að skríða á meðan við vorum í veislunni.

Það var æðislegt að koma aftur “heim” og ekki verra að fá að gista í húsinu við hliðina á gamla húsinu mínu í góðum félagsskap Nemans og fjölskyldu.

Óska Hjúkkunni enn og aftur til hamingju með daginn og þakka öðrum kvenfjelagskonum fyrir samveruna, þetta var allt frábært og fallegt.

Oska hjukku, hennar manni og dottur innilega til hamingju med daginn.  Spennt ad heyra sogurnar og sja myndirnar.

Sjaid hvad vid erum annars hamingjusamar – sidustu blogg eru bara “til hamingju” blogg!

Kvedja fra Krit

Loggan