You are currently browsing the monthly archive for október 2006.
Drattaðist fram rétt rúmlega 9 í morgun með prinsinum mínum að horfa á barnaefnið. Þegar við kveiktum á var mynd af eldhússkápum og einhverju drasli inni í þeim og talað með:
“Ég bý oft inni í skápunum þínum. Börnin mín eru oft í morgunkorninu þínu, musliinu, hnetunum eða haframjölinu. Ég geri sterkan vef utan um börnin mín svo að haframjölið festist í honum en lirfunar mínar far ekki á diskinn þinn. Oftast er mér pakkað í morgunmatinn þinn í verksmiðjunni. Viltu sjá hvað ég er, ég er fiðrildi…..”
Frábærar upplýsingar! Þau börn sem voru vel vöknuð og föttuðu um hvað málið snérist hafa örugglega neitað að borða morgunkorn í morgun af því það væru lirfur í honum eða grenjað yfir því að finna engar lirfur í matnum sínum!
Hvað varð um Bryndísi og Þórð og annað uppbyggilegt barnaefni????
Kv. Löggan
Ekki nema 59 dagar til jóla og ekki seinna vænna en að fara gera jólaplön.
Við hjónin ætlum í borgarferð 2. helgina í desember, eða 8.-10. des. Væri ekki upplagt að vera með smá jóla-hitting á föstudagskvöldinu, þó ekki væri nema heitt kakó og piparkökur með?
Kveðja að norðan.
Prinsinn af Norðlingaholti kom í heiminn rétt áðan, eða kl. 20:17. Hann var mun styttri en gert var ráð fyrir eða bara 49 cm en alveg 14 merkur sem er þó töluvert lægri tala en búist var við. Til allrar hamingju gekk allt vel og ég sit hér með sæluhroll, geðveikt fegin
Til hamingju Ísland!
Ég ætla að fara í heilun. Ef hún virkar ekki er ég að spá í að leita mér að annarri vinnu…

……er frábært.
