You are currently browsing the monthly archive for nóvember 2006.
… væri gaman að fá aðstoð ykkar við að éta afganga úr einsársafmæli He-mans. Geri ekki ráð fyrir að langömmurnar éti mig á gaddinn, en það má þá redda málunum í bakaríinu. Alveg óþarfi að vera að stressa sig á pökkum, hann hefur ekki hugmynd um hvað er í gangi ![]()
Jæja, þá er maður nýlentur úr seinni DK ferðinni. Niðurstaðan úr þessum ferðalögum er:
- ég á alveg fullt af rosalega skemmtilegum vinkonum og ferðafélögum!
- byrjuð að safna í nýjan ferðasjóð með báðum hópum!
- rosalega gott að hafa óléttan ferðafélaga í svona ferðum, sem þarf að hvíla sig á 2ja tíma fresti; og ég þá líka! (við fæðingarorlofskonan skorum á hjúkkuna að leggja í fyrir næstu ferð
). Agalegt að vera með fullt af orkuboltum sem hvíla sig aldrei (eða bara stundum allavega). - í hvorugri ferðinni þurfti að bera einhvern ofurölvi heim, ekkert framhjáhald og enginn söng í karioke; sem er skrítið því við settumst inn á svoleiðis bar
. Bara bölvaðar gungur. Er búin að kaupa singstar og verð vel upphituð fyrir næstu ferð;-) - og næst verða ALLIR í hópnum að koma með; ofsalega leiðinlegt að sakna hinna (skæl, skæl…)
- það sem þessi ferð hafði umfram hina er að einni tókst að kaupa 2 hægri skó á manninn sinn (snilld!) og við vorum með 60 kg. í yfirvigt – reynið að toppa það! Við reyndum hins vegar ekki að tala dönsku við íslenskt afgreiðslufólk eins og á smörrebrödstofunni
- jólatívolí og jólamarkaðurinn í Nyhöfn er algjör snilld.
Hlakka til að hitta ykkur allar og fylgisveina í jólagleðinni (var þetta með eða án gríslinga).
Kv. Skrifstofukellingin
…erum við að vera ekki duglegri að blogga. Eins og það er nú gaman að lesa nýjar færslur!
Mér sýnist að nýbakaðasta mamman í hópnum sé æsispennt að fá að bjóða okkur upp á löpp af nýju lambslíki og ég græt ekkert hræðilega sárt yfir að hún hafi stolið frá mér jólunum enda á ég langt í land með að komast með tærnar þar sem hún hefur hælana í myndarskapnum.
Ekkert að frétta af mér annars, ég er bara alltaf að Kleppast… kúkú!
Óska húsfrúnni innilega til hamingju með afmælið í gær. Ekki í vafa um að húskallinn hafi staðið úti í rokinu í gær og grillað eitthvað gott
Kossar og knús að norðan;
kv. sýslu-rukkan
Fyrir akkúrat tveimur árum var ég með bumbuna út í loftið, gat mig lítið hreyft vegna orku- og úthaldsleysis eftir tveggja mánaða legu. Ég var nýkomin heim af fæðingardeildinni þar sem mér var sagt að ég væri með 3 í útvíkkun og ég send aftur heim með parkodin og fyrirmæli um að fara í heita sturtu. Ég fór auðvitað eftir þessum fyrirmælum en samt sló lítið á verkina. Kl.6 fórum við skötuhjú aftur upp á spítala og héldum að nú færi allt að gerast. En nei nei, ég var enn með 3 í útvíkkun, en þar sem verkirnir voru svo sterkir var ég ekki send heim. Ljósan setti mig í monitor og sagði að þetta væri örugglega strákur sem ég væri með, hún sæi það á hjartslættinum! Ég fékk þessa fínu fæðingarstofu með heitum potti og alles en mátti sætt mig við að horfa á hann allan daginn en fá ekki að fara ofan í hann. Ég bjóst nú við að fljótlega færi útvíkkunin að verða meiri og barnið að koma í heiminn. En nei nei. Skoðun kl.7 sýndi 3 í útvíkkun, skoðun kl.12 sýndi 3 í útvíkkun (og ég send í göngutúr til að fá mér eitthvað að borða. Var örugglega mjög hugguleg í kaffiteríunni á barnaspítalanum), skoðun kl.14 sýndi 3 í útvíkkun og skoðun kl.16 sýndi 3 í útvíkkun. Hvað var eiginlega í gangi. Átti þessi krakki ekki að koma í heiminn, ég var nú að nálgast 10 mánuði í meðgöngulengd !! Það var ekki fyrr en kallinn barði í borðið og sagði hingað og ekki lengra, “á ekki að fara að sprengja belginn og koma þessu lengra en 3 í útvíkkun “. Mætti halda að hann hafi verið ljósan því um leið og það var gert fóru hlutirnir að rúlla…….4-5-6-7-8-9-10……..og rembast, rembast rembast. Kl.23:09 kom falleg stúlka í heiminn og allir önduðu léttar (foreldrar, ömmur, afar og kvennfélgaskonur ).
Já nú er skottan litla orðin 2ja ára, ótrúlegt. Hlakka til að fara heim af næturvaktinni, knúsa hana og gefa henni afmælispakka.
Hjúkkan.
