You are currently browsing the monthly archive for desember 2006.
Ég veit að það var ekki búið að skora á mig en ég skrifa nú samt. hehe.
Það versta við að skrifa hérna er að ég hef aldrey hugmynd um hvað ég á að skrifa. Það er bara ekkert sem mér dettur í hug. En jæja, prufa samt.
Ég ætla allavegana að segja að mér fannst allveg ofboðslega gaman að hitta ykkur í bæði skiptin. Fyrst í vor, Hjúkku og stjórnmálafræðing og svo Löggu, deildastjóra, nemann og hjúkku. Líka svo gott að komast aðeins í burtu
Á hverju ári í desember ákveð ég alltaf að núna fer ég með börnin á jólahátiðina hjá íslendingafélaginu og í íslenska messu en eins og alltaf á hverju ári gleymi ég að ath. hvenær það er og frétti það svo daginn eftir. Það verður að gerast á næsta ári;) Það var svoldið panik hérna síðustu mánuði, um miðjan október vorum við búin að bjóða 18 manns í jólafrokost þann 9 des. en vandamálið var að það var ekki byrjað að gera stofurnar upp. Mér fannst eins og við hefðum nógann tíma, byrjaði þessvegna að taka herbergið hennar skottu í gegn, fínpússa veggi, veggfóðra og mála. Það gekk mjög vel. þá var kominn nóvember þegar byrjað var loksins með stofurnar. Fyrst far farið í að fínpússa veggina, svo spærsla loftið og slípa og svo aftur spærsla loftið og slípa. Þá veggfóðra bæði loft og veggi, þá fannst okkur við hafa nógann tíma. Helgina áður en boðið var slípuðum við parkettið í báðum stofunum (í annað skiptið á 6 mánuðum) og olíuborum það. Það var búið á þriðjudeginum. Á miðvikudeginum var byrjað að mála, pabbi kom og hjálpaði mér og við náðum 3 umferðum af málingu á 2 dögum. Allann tímann var maður í skólanum, læra heima, gera laun, senda reikninga, vinna í bókhaldi, elda mat, þvo þvotta, sjá um börn og svo allt annað. Þetta rétt hafðist og við skemmtum okkur konunglega með vinum okkar á laugardeginum. Þannig að restina af desember var notaður til að slappa af og versla jólagjafir. Við erum búin að hafa frábær jól og vonandi hafið þið haft það jafn gott.
Óska ykkur öllum farsæld á nýju ári og þakka allar góðu stundirnar á liðnum árum.
Vonandi sjáumst við sem fyrst aftur.
Kveðja Danska konan.
Sælar vinkonur og aðrir lesendur.
Ég vil nú byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir hreint frábær jólakort. Sérstaklega vil ég þakka bóndanum og stjórnmálafræðingnum, hef sjaldan séð eins mikla handavinnu á bak við jólakort
Annars voru jólin hér hjá okkur alveg hreint frábær. Það var mikið af fólki, mikill hávaði, mikið af pökkum og mikið borðað. Stórfjölskyldan var saman komin hér í Rauðavaðinu og það dugði ekkert annað en að snúa öllu heimilinu við til að koma öllum fyrir. Við vorum sem sagt 13 í heildina með Frostie the Snowman, 4 börn og því var setið hér langt eftir kveldi að taka dót úr umbúðum. Held að kínverjinn sem sér um að pakka þessu fjand… dóti hafi kafnað úr hiksta á aðfangadagskvöld!
Ég var nú búin að lofa að uppljóstra leyndarmálinu á bak við matinn um daginn, sendi ykkur það bara í tölvupósti við tækifæri, enda þetta innlegg mitt orðið allt of langt, svona miðað við fyrri frammistöðu.
Að lokum vil ég óska ykkur gleðilegs árs og þakka ykkur fyrir frábærar stundir á árinu. Vonandi að við verðum eins duglegar á komandi ári.
Ég skora svo á bóndann að blogga næst og senda mér eins og eina jólakveðju!!
Jæja, þá er aðfangadagur liðinn og jóladagurinn líka. Við erum að sjálfsögðu búin að hafa það mjög gott og eins og hjá flestum öðrum búið að borða mikið, sofa mikið og hafa það alveg rosalega huggó. Meira að segja búin að borða jólaísinn
Eitt af því sem ég furða mig á ár eftir ár um jól og í afmælum eru umbúðir og pakkningar utan um barnadót. Maður þarf hreinlega að hafa verkfærakassa heimilisins við höndina þegar kemur að því að frelsa dótið úr pakkanum!
Stelpudót, sérstaklega dúkkur, er strappað fast, dúkkuhárið er saumað fast við kassann og það eru heljarinnar átök að reyna opna þessar plastumbúðir sem dótinu er pakkað inn í.
Strákadót er líka vel strappað í umbúðir, stundum þarf meira að segja skrúfjárn til þess að losa það. Þá tekur við að setja herlegheitin saman. Get svarið það að fólk með verkfræðigráðu á örugglega líka erfitt með að finna út úr því hvernig á að kubba Bioncle kalla eða setja saman playmo! Og þetta er ætlað börnum frá 4 ára aldri. Snilld!
Get allavegað lofað því að 4 ára gamall krakki sem nær að klambra svona dóti saman verður verkfræðingur eða annarskonar snillingur í framtíðinni.
Haldið áfram að borða og hafa það huggó fram yfir áramót!
Kv. Löggan
Óska öllum kvennfjelagskonum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla. Vonandi hafið þið það sem allra best um hátíðarnar. Gott að vita að ég er ekki sú eina sem gerði ekki “jólahreingerningu”
Það sem liðið er af jólahátíðinni hefur farið vel fram. Við fjölskyldan keyrðum vestur 22.des í ágætis veðri. Smá leiðinlegt færi síðustu 2 firðina en maður lætur það ekki á sig fá. Vorum mjög fegin að fara ekki ákveðið að keyra 23.des þar sem veðrið var mjög slæmt. Fjölskyldan átti pantað í klippingu á þorláksmessumorgun á Ísafirði en urðum að afpanta vegna veðurs og erum því vel loðin á kollinum í þessum skrifuðu orðum. Við borðuðum auðvitað skötu á þorlák og skottan litla lét sig hafa það að bragða á skötunni og bað um meira. Ekki slæmt það.
Á aðfangadag var skundað í messu og fékk skottan að sitja á fremsta bekk uppi ( yfir altarinu). Hún byrjaði á því að syngja “pabbi segir” háum rómi áður en messan byrjaði og sat svo nokkuð róleg allan tímann. Tók reyndar eitt grátkast en það var góð ástæða fyrir því, hún missti mömmukökuna niður og hún lennti fyrir innan alltarið !!! Sem betur fer var presturinn að fara með pretikunina og fékk kökuna ekki í höfuðið
Góð kona sem sat á þriðja bekk niðri bjargað málunum, stökk og náði í kökuna og kom með hana upp ( við vorum reyndar með nóg af kökum í töskunni en skottan vildi auðvitað bara þessa sem datt). Pakkaflóðið var gríðalegt en allir héldu sönsum og voru allir þakklátir með sínar gjafir.
Jóladagur er að mínu mati besti dagur hátíðanna því þá er sofið fram eftir morgni, slappað af, borðaður góður matur og oftast nær er ekki farið úr náttfötunum allan daginn. Svona á þetta að vera , ekkert stress.
Enn og aftur, gleðileg jóll.
Hjúkkan.
Það var ekki á stefnuskránni að mæta til vinnu klukkan 8 í morgun. Ég ætlaði að vera heima og lesa og éta jólaís. Voool. Jæja ég fann allavegana þráðlaust net. Og ég er með tölvuna mína, laufabrauð, malt, bók og mynd til að horfa á. Gæti alveg verið verra.
Í gærkvöldi lærði ég mikilvæga lexíu. Það sem virkar lítið í IKEA þarf ekki endilega að vera lítið þegar heim er komið. Litla tjaldið sem við gáfum He-man í jólagjöf reyndist vera 6 manna hústjald
Hin gotneska og dula dóttir mín svipti af sér kúlinu og var engill jólanna í gær, borðaði mikið, spjallaði, brosti og var ánægð með allar gjafirnar sínar. Það var eiginlega besta jólagjöfin mín. Maður fer ekki fram á mikið…
He-man var spenntastur fyrir Barbapapa bókinni sem ég leyfði honum ekki að hafa af ótta við að hann myndi rífa hana… Honum finnst fallegast að hafa jólatréð lítið skreytt, a.m.k. neðstu greinarnar, eða kannski tætir hann skrautið af svo það flækist ekki í hárinu á honum þegar hann skríður undir tréð.
Jólaboð í kvöld, jólaboð á morgun… hvenær á ég að borða jólaísinn minn?
- Grinch með Jim Carrey – algjör snilld fyrir jólin!
- Draumalandinu, eftir Andra Snæ. Lýsir íslendingum algjörlega!
- Desperate houswifes, seriu 3 – verða betri með hverjum þættinum!
- Prison break; þvílík spenna!
- Venna Páer; snillingur:-)
- Jóladiski KK og Ellenar á aðfangadag.
- öllu jóla-jóla
- Get ekki mælt með skötu af eigin raun, en fín hefð þó hjá þeim sem það líkar
Leiðinlegasta setning desember mánaðar er þó “ertu búin að öllu fyrir jólin”?
Búin að hverju? Jú, ég keypti gjafir fyrir mína nánustu, sendi vinum og ættingjum jólakort en ég er ekki búin að baka 8 sortir, ryksuga og skúra, þvo veggi og tæma þvottakörfuna. Heldur ekki búin að viðra rúmfötin, þrífa bílinn eða ísskápinn sem færir mig aftur á fyrsta punkt fyrir ofan og þess vegna er þessi mynd líka algjör snilld – jólin koma hvort sem þú ert “búinn að öllu” eða ekki og ég ætla sko bara að hafa gaman að jólunum eins ég og mitt fólk viljum hafa það; þannig á það að vera hjá hverjum og einum
Eyðið orkunni í fjölskylduna en ekki í ryksuguna, tuskuna og kústinn; nógur tími fyrir það seinna (þetta er sko fín afsökun fyrir fólk eins og mig sem nennir ekki að þrífa… he, he)
Óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og hafið það gott um jólin.
Gleðileg jól snúllurnar mínar og sjáumst vonandi sem fyrst
Jæja þá er best að blogga smá. Við fjölskyldan fórum til Bolungarvíkur um þarsíðustu helgi, byrjaði helgin rosalega vel, fórum í skólan og skoðuðum þar myndir í gluggum og gamlar stofur(það er ótrúlegt að við höfum komist inn í skápana i 10 bekkjar stofunni). Farið var í göngutúr seinna um daginn og matarboð um kvöldið þar sem einn gesturinn var kominn með pest og hóstaði þessi ósköp.
Jæja daginn eftir var frúin farin að finna til mikils hósta og hor farið að renna, kallinn kominn með í bakið og Arnar kvef en það var nóg að gera farið út að labba og rætt um heima og geima í boðum en Rannveig var einnig á svæðinu:) Seinnipartinn var ég orðin ansi slöpp en lét mig hafa það að fara í matarboð. Jói vaknaði á sunnudagsmorguninn flökurt ósofinn útaf bakinu og í flugvélinn svitnaði hann bara og þegar heim var komið fór allt upp úr honum og seinna niður úr honum, svona var hann í 2 daga, ég var hóstandi slöpp og með hor í tæpa viku, Arnar líka, stelpurnar sluppu sem betur fer. Við erum búin að missa af 3 sundtímum. þannig að við förum aldrei afur til Bolungarvíkur…………..:)
Eitthvað virðist þessi leikur ekki vera að gera sig. Hvar er húsmóðirin ???
Hjúkkan
þessir gömlu kallar eru í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Ótrúlegt hvað maður á stillt og góð börn í 13 daga fyrir jól
Prinsinn á heimilinu þylur upp vísur Jóhannesar úr Kötlum daglega; læt vísu næturinnar fljóta með:
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti’ ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
-Kv. löggan
Kokkarnir í Holti Norðlinga stóður sig með miklum sóma. Dýrindis matur, fæ vatn í munninn þegar ég hugsa um hann. Væri nú gaman að fá uppskriptina af aðalréttinum hjá kokkinum ef það er hægt. Við fjölskyldan segjum “takk fyrir matinn, hann var góður “.
Þar sem þessi síða hefuru verið í einhverju skammdegis þunglyndi síðustu vikur langar mig að reyna að virkja pennana og koma með áskorunarleik. Sá sem skorað er á, bloggar og skorar á næsta……..o.s.frv. Það þarf ekki að vera mikið. Bara eitthvað.
ÉG SKORA Á HÚSMÓÐURINA Í G.VOGI.
