You are currently browsing the monthly archive for janúar 2007.

Þetta var rosalegur leikur, ég sit hér með gæsahúð eftir leikinn, búin að arka um öll gólf, straua öll föt sem ég finn og naga þessar litlu neglur sem ég hef. ÚFFFFFF. Aumingja strákarnir þeir voru rosalega góðir en þvílik óheppni, svo vantaði ekki mikið upp á tárin þegar lagið var spilað undir bestu stundir okkar í keppninni sýndar. Þeir hafa sko staðið undir sínu.  ÁFRAM ÍSLAND á fimtudaginn.

kv Húsmóðirinn

Djö…. er ég svekt yfir úrslitunum.

Komist þið kvennfjelagskonur í kaffi til mín á mánudagskvöldið ???

Stjórnmálafræðingurinn er að koma suður um helgina og fer svo út á fimmtudag og mér datt í hug að það væri gaman að hitta hana og kveðja hana.

Á reyndar eftir að athuga hvort hún kemst, en held hún sé laus.

Gætum líka hist eftir vinnu með krakkana með okkur.

Þessa helgi fylltist húsið við Húnaflóann af mjög góðum gestum en það voru neminn og húsfrúin sem æddu yfir Holtavörðuheiðina með fjölskyldur.  Frábær helgi, mikið étið, dukkið sungið og trallað og skipulagðar sleðaferðir í boði.

Og auðvitað þegar þrjár aðalfrekjur klúbbsins koma saman, þá er gaman – já og þá eru líka teknar stórar ákvarðanir.  Gátum að sjálfsögðu ekki stillt okkur um að skipuleggja viðburði ársins – og nú er bara að merkja inn á dagatalið hjá sér fráteknu dagana/helgarnar :-)

Nú auðvitað byrjar fjörið á hinu árlega þorrablóti sem deildarstjórinn er búinn að taka að sér að hýsa.  Ætlum nú samt að reyna koma að einu atriði þar – SingStar.  Vorum með singstar mót hérna á laugardaginn sem tókst líka svona vel, mikið hlegið og mikið gaman (sungu allir nema einn …) .  Hvað segið þið um singstar milli kl. 21-23 og æra liðið sem ærir deildarstjórann og fjölskyldu alla hina dagana?  Við hér eigum Singstar legend og 2 mikrofona og húsfrúin og fjölsk. eiga einn singstar líka, treysti á að unglingur deildarstjóra leggi til playstation.

Nú og svo voru sumarbústaðarferðir að sjálfsögðu ræddar.  Grunur leikur á að karlarnir/viðhengin séu að plotta sumarbústaðarferð, svo að við kellurnar ákváðum að auðvitað ætlum við þá að fara í svona stelpuferð.  Og svo eina ferð í vor, apríl/maí og taka þá með menn og börn.   Þá er vonandi orðið hlýtt og gott og hægt að leika úti.  Stefnan tekin á Borgarfjörðinn, svona miðsvæðis fyrir flesta.    

Vinsamlegast gefið ykkur fram ef þið hafið aðgang að góðum bústöðum eða húsum á þessu svæði.  Og líka til þess að láta vita hvaða helgar í apríl/maí henta best, því eins og svo oft áður þá eigum við þrjár ekkert líf og alltaf tilbúnar að stökkva þegar einhver viðburður er í boði :-)

Og svo útilegan.  Eitthvað sem hefur tekist bara einu sinni hjá þessum hópi svo að nú er kominn tími til.  Og taka helgina frá með góðum fyrirvara.  Stefnan tekin á 13.-15. júlí; þeir koma sem komast!  Ekki búið að ákveða staðsetningu, ræðst aðeins af veðri, en suðurlandið kemur sterkt inn.

Nú og síðast en ekki síst er það helgarferðin okkar í haust sem allir eru að safna fyrir  (?).  Stefnan tekin á USA, Boston, en ef það verður of dýrt eða ómögulegt kemur margt annað til greina, til dæmis UK og taka þá kannski einn leik í leiðinni. 

Það var svosem margt annað rætt en ekkert af viti svo að þetta verður að duga í bili.  Heimta komment á þetta !!!!!

FH. skipulagsnefndar

Löggan

ps. takk fyrir FRÁBÆRA helgi!!!!

Vá ég hélt ég mundi frjósa  þegar ég kom út í bíl eftir fundinn í gær. -14°C Þegar að ég kom heim til mín var bara -7°C.

Ætti maður ekki bara að panta sér  ferð í sólina ef þetta heldur svona áfram.

Eigum við ekki að fara að hittast og skipuleggja blótið.  Það eru ekki nema fjórar vikur í stuðið.  Verðum að ræða staðsteningu, hver skandalar og fleira :)  

Dansiballið verður í Ýmishúsinu.

Ég hef heyrt að stjórnamálafræðingurinn ætli að reyna að mæta og ég trúi ekki öðrðu en að löggan og hennar kall komi. Þau klikka ekki.