You are currently browsing the monthly archive for febrúar 2007.

Er með krassandi fréttir eftir síðustu vesturferðina mína.  Verðum að fara  að hittast, þetta er ekki eitthvað sem fer á netið.

Jæja, hvað segið þið um að fara ákveða sumarbústaðarferð?  Þetta er orðinn svo stór hópur að það veitir ekkert af að fara plana strax.

Ég sting upp á 3 dagsetningum, 20. apríl, 18. maí eða 25. maí – þetta eru allt helgar sem er hægt að lengja með einum frídegi.  Þurfum örugglega að taka 2 bústaði.  Ég hef aðgang að þessum:

Húsafell: http://www.sfr.is/template1.asp?id=305

og Munaðarnes: http://www.sfr.is/template1.asp?ID=304

(bara að hugsa um að vera miðsvæðis; svona líka ef bóndanum dettur nú í hug að mæta með sitt sletti)

Koma svo með hugmyndir!!!!

Kv. Löggan

Ég held að ég verði að fresta saumó eitthvað.

Vil vera viss um að ég sé ekki að bjóða ykkur í pestarbæli en He-man stóð fyrir hátíðinni “Gubb og gaman” í nótt. Hann er hinn hressasti núna samt og ber það miklu betur en ég að hafa vakað hálfa nóttina :)

Já eins og flestir sem hlusta á útvarpið eða lesa blöðin þá er konudagurinn á sunnudaginn. Ég hef nú ekki gert miklar væntingar til þessa dags undanfarin ár en verið mjög glöð ef ég fæ rósir eða góðan mat sem kallinn eldar.

Þetta árið ætlar minn heittelskaði eiginmaður að koma mér á óvart.  Hann var búinn að nefna við mig í vikunni að hann ætlaði að bjóða mér út að borða á föstudaginn (smá fyrirfram konudagsgjöf) en ég mátti ekki vita hvert við værum að fara að borða. Spennandi.  Í gærkvöld toppaði hann þetta svo þessi elska.  Sagði mér að barnið færi í næturpössun og bað mig að taka til í tösku helstu nauðsynjar fyrir næstugistingu !!!

Ég er sem sagt að fara í óvissuferð og það eina sem ég veit er að ég fæ að borða og gisti ekki heima hjá mér .

 Eins gott að ég er ekki að vinna á morgun því ég væri óvinnufær vegna spennings.

Jæja, nú hlýtur að vera komið að mér að halda saumó.

Hvenær viljiði koma?

 

Eftirfarandi samtal átti sér stað á heimili mínu fyrr í kvöld:

Hann: Gekk vel að klippa neglurnar? (á He-man)

Hún: 10 metrar og tveggja stiga hiti.

Hvort ráðleggið þið heyrnartæki eða elliheimili?!

Sagði heimasætan um frammistöðu okkar í singstar.

Hún kann ekki gott að meta greyið enda tónlistarsmekkur hennar ekki jafn fágaður og okkar ;)

Fyrsta næturpössunin gekk rosalega vel, nú verður sonurinn reglulega sendur í gistingu svo við skötuhjú getum sofið út!

Kv. Deildó.

Fyrir 2 vikum vorum við að kvarta yfir frosti, kulda og snjó.  Núna, 1. febrúar, er 6 stiga hiti úti og gríslingarnir á heimilinu hjóluðu í leikskólann í morgun!  Smá breyting.  Veðurmaðurinn sagði reynda að það ætti að vera í úlpu með húfu og vettlinga, en svo var rigning.  Ekkert að marka þetta.

En að öðru, hvenær er mæting á laugardaginn og tókst deildarstjóranum nokkuð að losa sig við hittinginn?

Mæti með hákarl og laufabrauð í sameiginlegt (og hvað meira??)

Hlakka til að sjá ykkur, kv. Löggan