You are currently browsing the monthly archive for mars 2007.
Til hamingju með daginn deildarstjóri. Þetta er merkisdagur, fyrsta í hópnum til að ferma
Vonandi eigið þið góðan dag, hlakka til að hitta fermingarbarnið í dag, já og auðvitaða fjölskyldu hennar og vini.
Rakst á þetta áðan, ótrúlegt að við skulum vera enn á lífi eftir þetta allt saman!
Já, samkvæmt löggjöfum og skrif finnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratug síðustu aldar ekki að hafa lifað af. > HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA? Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu. Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm. Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða. Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman. Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika. Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist. Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið. Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn. Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga! Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X- box, enga tölvuleiki,ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu. Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá. Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi? Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það. Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum! Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur. Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta. Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur. Við stjórnuðum okkur sjálf. Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt… En þeir lifðu af. Engin vissi hvað Rídalín var og engin bruddi pillur sem barn. Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í skátunum og lærðum hnúta og kurteisi. Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf. Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því… OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI! Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé “okkur sjálfum fyrir bestu”?. Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð í að leysa vandamál og eru bestu fjárfestar nokkru sinni. Við áttum bara gott líf er það ekki?
Stelpur eru algjör snilld. Mjög gaman að fylgjast með mun á stelpum og strákum þegar þau leika við vini sína. Máninn leikur við þann sem nennir að vera í lego þennan daginn og playmo hinn daginn. Alveg sama hvort það eru 2 eða 5 saman, einhvernveginn gengur þetta alltaf upp og aldrei neitt vesen.
Katlan á nokkrar vinkonur, og reyndar vini líka – strákarnir eru oft meðfærilegri að hennar mati, þá ræður hún!
Hún á eina vinkonu sem hún kallar bestu vinkonu. Þegar þær koma saman steingeiturnar eru þær horn í horn allan tímann og ekki til í dæminu að önnur gefi eftir. Það er grenjað, öskrað og vælt meirihluta leiktímans. Hins vegar þegar ég sæki hana til vinkonunnar eða hin mamman sækir vinkonuna vilja þær helst ekki fara heim “það var svooooo gaman að leika og ætla aftur að leika á morgun ……”
Ef maður snýr svona dæmi upp á sjálfan sig; jú það var rosalega gaman í saumó, við rifumst alveg fullt; eiginlega allan tímann, bara tvær fóru að grenja (en þær eru hvort sem er alltaf grenjandi) og við erum ekkert smá spenntar að hittast aftur ……
Held ekki!
Er ég eina sem á svona dramadrottningu, eða eru stelpur svona???????
Óska stjórnmálafræðingi til hamingju með gærdaginn. Hvernig væri nú að fá að heyra aðeins frá DK, hvernig lífið og tilveran gengur og svoleiðis;-)
Saknaði brauðrétta AB í gær í tilefni dagsins.
Kv. Löggan
Enn og aftur stingur bóndinn okkur af og er nú orðin 32 ára á undan öllum öðrum. Þar sem morgunógleði heyrir sögunni til vænti ég þess að hún fái sér lindubuff og 2 ltr. kók með – og fullt af kökum.
Þar sem við erum allar, eða flestar, hingað og þangað um hnöttinn læt ég flakka eina góða uppskrift og þá getur hver og ein bakað og haldið upp á áfanga dagsins
.
Enn og aftur til hamingju með daginn – fullt af kossum og knúsi frá mér og vonandi hittumst við í Húsafelli í apríl:-)
-Löggan
Frönsk súkkulaðikaka
4 stk egg2 dl sykur200 gr smjör200 gr suðusúkkulaði1 dl hveiti
Þeyta egg og sykur vel sama. Bræða smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið smjöri og súkkulaði varlega úti deigið.Bakið í vel smurðu tertuformi (ekki lausbotna) við 180° í 30-40 mín. (kakan á að vera blaut í miðjunni)
Krem
70 gr smjör150 gr suðusúkkulaði1-2 msk síróp
Látið allt saman í pottog bræðið við vægan hita. Látið aðeins kólna og berið síðan á kökuna.
Ég minni á saumó á fimmtudagskvöldið. Karlinum hent út og grísinn vonandi sofnaður rúmlega 8. Hlakka til að sjá ykkur

Búið að bóka bústaði frá föstudegi til sunnudags í Húsafelli. Ef það eru einhverjir sem ætla að taka sér frí á föstudeginum og mæta fyrr, láta mig vita, svo að ég geti bætt við dögum. Kostar 1500 kr auka hver sólarhringur.
Hvor bústaður kostar 10.500 kr. helgarleigan
Nú getum við stelpurnar farið í jeppaferð upp á jökul og skoðað surtshelli á meðan strákarnir grilla fyrir okkur;-)
