You are currently browsing the monthly archive for apríl 2007.

Takk fyrir skemmtilega helgi kvensur og co.  Þið hinar sem komust ekki, vonandi komist þið með næst.

Fjölskyldurnar mættu á mismunandi tímum. Sumir á fimmtudag, sumir á föstudag og sumir á laugardag.  Dagskráin var hefðbundin sumarbústaðardagskrá :  borðað, drukkið, spilað og svamlað í vatni.

Reyndar var ekki mikið um tertur og sælgæti í þessari ferð þar sem Húsmóðirin var vant við látin og komst ekki. Vorum samt alltaf að vona að hún brunaði á nýja fáknum til okkar. Við hinar reyndum að redda málunum og bökuðum vöfflur sem virtust vera vel heppnaðar því þær hurfu allar af diskunum.   Undirrituð keypti risastórann dunk af nammi í fríhöfninni en fattaði þegar að hún kom heim að hún gleymdi að taka það inn úr bílnum og bjóða það.  Kannski verður það á boðstólum á næsta fundi.

Sundlaugin í Húsafelli var heimsótt a.m.k. einu sinni og var mikið fjör þar og pottarnir við bústaðina voru mjög notarlegir.  Alltaf gott að skella sér í pottinn áður en farið er að sofa.

Að venju var mikið drukkið…………….ekki fæst gefið upp hvort það var áfengt eða óáfengt sem hafði vinninginn, en alla vegana endaði ferðin fyrr en áætlað var hjá sumum vegna uppkasta og slappleika.  Vonandi er heilsan komin í lag á þeim bæ.

Takk afur fyrir helgina,

Kv.Hjúkkan og co.