You are currently browsing the monthly archive for maí 2007.
Var að koma úr útskrift – litla/stóra barnið mitt að útskrifast úr leikskólanum
. Leikrit, söngur, útskriftarhattar og-skjöl; mikil athöfn og krúttleg.
Lýsi hér með eftir bloggfærslum. Skorað hefur verði á stjórnmálanemann danska.
Einnig lýsi ég eftir fundargerð frá síðast fundi um helstu málefni fundarins.
Það er komið að prófum hjá mér…
sem er náttúrulega ekkert mál fyrir Jón Pál. Vandamálið er bara að ég er ekki Jón Páll, ég er bara íslensk “stelpa” sem er í skóla í Danmörku.
Það er nýbúið að breita einkannatölunum hérna, en áður gat maður fengið 11 og 13 í einkun. Núna getur maður fengið 12 í efstu gjöf, en það leiðinlega er að ef maður rétt slefar (eins og ég vonast til að ég geri í þýsku) þá er einkunnin bara 02. Pælið í að fá 02 í prófi :O.
Í allt fer ég i 4 próf, en 3 af þeim eru munnleg. Ss. á ég að getað talað þýsku núna á föstudaginn í 10 mínútur og rætt um útvaldann teksta. (hjálp).
Þannig að á föstudaginn klukkan 8:15 á dönskum tíma, 6:15 á íslenskum tíma fer ég í þýskupróf. Þið hugsið kannski vel til mín á meðan, eða dreymið vel um mig
og ég læt svo vita hvort ég hafi fengið 02 eða sem verra er -3 (já það er hægt að fá mínus 3 í einkunn)Gúlp…
Kveðja sú stressaða
Nú er orðið ljóst að ég verð bæjarstjórafrú á Egilsstöðum í lok júlí. Egilsstaðir þessir eru þó ekki langt úti á landi heldur í póstnúmerinu 170 þannig að við Hjúkkan verðum aftur sveitungar
Á miðvikudaginn síðasta fór ég á lokahóf HSÍ, eitthvað sem ég hef aldrei gert áður en þegar maður hafði brennandi áhuga á handbolta um árið þá langaði manni nú oft að fara.
Einar Þorvarðar tók á móti mér, já og líka kallinum, og vísaði okkur til borðs með sér og Júlla Jónasar. Mín var nú ekki ósátt við það að sitja við sama borð og þessar hetjur.
Bjarki Sig lét sig ekki vanta þetta kvöld og rifjaðist upp fyrir mér skemmtileg gæsun þegar að ég sá hann. Fannst reyndar mjög lélegt að hann fékk engin verðlaun en nóg fékk hann af tilnefningum í 1.deild.
Patti var líka á staðnum en ég saknaði þess að sjá ekki Alfreð Gísla, Stjána Ara og Valda Gríms.
Spáið í því ef þetta hefði verið fyrir c.a. 15 árum þegar við vorum að æfa hjá Steinu Ananas !!!
Í gær átti ég alveg dásamlegan seinnipart – eða þannig!
Var að flýta mér alveg rosalega að ná Eika í eurovision og var að skutla krökkunum til ömmu og afa. Sá að það var komið rautt ljós á eldsneytismæli svo að það var brunað á ÓB stöðina og bensíni fyrir 5000 kr. dælt á drusluna og keyrt til tengdó.
Þegar ég var búin að henda krökkunum þar inn og ætla að halda af stað heim fór bíllinn ekki í gang – enda bensín ekki gott á díselvélar
-Mikil gleði!
Bíllinn var skilinn eftir og ég fékk lánaðan bíl til þess að komast heim. Horfði á hluta af keppninni, lögin hvert öðru hræðilegra (nema Eiki auðvitað) og svo til að toppa það komst hann ekki áfram.
Þegar það lá fyrir kom SMS – þú hefur unnið 5000 kr á einfaldan miða eða 25000 kr á trompmiða í HHÍ. Sem er mjög gott – ef ég hefði ekki sagt þessum blessaða miða upp áður en ég flutti norður fyrir 2 árum! Gat þó huggað manninn minn með því að við værum 19.000 kr. í gróða þar sem við hefðum ekki borgað 1.000 kr á mánuði til happdrættisins í 2 ár.
Morguninn byrjaði svo vel, prinsessan harðneitaði að fara í aðra skó en kuldaskóna sem voru á leikskólanum síðan í gær. Mikið grátið yfir því og ekki leið að snúa henni í þessu þrjóskukasti. Vill til að mamman er sennilega þrjóskari en hún, svo að henni var smellt yfir öxlina og borin skó- og úlpulaus út í bíl (sko, lánsbílinn). Þegar við komum á leikskólann mundum við eftir því að það var dótadagur en allt dót gleymdist heima :-S
Brunað heim, ærunni hjá prinsessunni bjargað því hún náði að komast í skó og úlpu og gekk með reisn inn á leikskólann þegar við komum í annað sinn:-)
Að öðru leyti hefur dagurinn í dag verið góður, búið að tappa bensíninu af bílnum og uþb. verið að fylla hann af disel aftur og allt í góðu lagi með hann.
Ps. haldiði að við hjónin höfum ekki bara smellt okkur á fellihýsi á síðustu helgi fyrir sunnan – nú er bara að fara plana útilegurnar
Fyrir þá sem ekki hafa gert upp hug sinn n.k. laugardag í alþingiskosningum bendi ég á að fara inn á þessa síðu og sjá hvar skoðanir ykkar liggja: http://xhvad.bifrost.is/.
Þetta er að sjálfsögðu bindandi álit og því kem ég til með að merkja við “X-I” á laugardaginn, en niðurstaða skoðunarkönnunarinnar var þessi: “Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Íslandshreyfingarinnar!“ – þar hafið þið það!
Er það ekki annars bara áfram Litháen í eurovision :-S (hef fylgst grimmt með forsýningu myndbanda, eða þannig …)
Ég er búin að skila öllum verkefnum og er orðin venjuleg vinnandi kona aftur
Byrja á nýjum stað á morgun og er að reyna að telja mér trú um að það verði bara fínt. Eftir ár verð ég leikskólastarfsmaður og verð að þrauka í öðru þangað til…
En allavega er ég vöknuð til lífsins eftir þessa törn og öllum óhætt að hringja og banka upp á anytime
Dreymdi ansi skemmtilega í nótt, eða réttara sagt áðan, alltaf sofandi þessar heimavinnandi.
Allavega, dreymdi að bæði Húsfrúin og Löggan hafi verið að eiga tvíbura, báðar með tvo stráka og ég var viðstödd báðar fæðingarnar.
Hvað er í gangi hérna……..þýðir þetta kannski bara að ég sé að fara fá tvö tillaskott??
Undirbúningur fyrir þorrablótið 2008 er hafinn. Þýskir vinir fjölskyldunnar (kannski frekar vinir húsbóndans) fréttu af miklum áhuga Kvenfjelagskvenna og maka þeirra fyrir Amaretto og sendu með hraðsendingu til landsins 1.5 L af þeim eðalvökva sem geymdur er í læstum skáp í vínkjallaranum. Hver ætlar að sjá um að redda magic ?

