You are currently browsing the monthly archive for júní 2007.
Sumargrill
Grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla. Húsmæður gleðjast yfir því að þurfa ekki að standa yfir pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!
Þannig gengur þetta fyrir sig:
Frúin verslar í matinn.
Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla, og býr til sósu.
Frúin undirbýr kjötið. Finnur til réttu kryddin, setur kjötið á bakka ásamt grilláhöldum.
Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.
Lykilatriði:
Bóndinn setur kjötið á grillið!
Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.
Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.
Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma með annan bjór á meðan hann tæklar ástandið.
Annað lykilatriði:
Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.
Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt og annað meðlæti, raðar á borðið.
Eftir matinn gengur frúin frá öllu.
Mikilvægast af öllu:
Allir þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM tókst upp.
Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað "frídagurinn"...
og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður hann að það er ómögulegt að gera konum til geðs.
Þessi sjón blasti við mér í dag þegar ég sótti orminn minn litla. Takk fyrir pössunina Nemi
Lofaði nemanum og deildarstjóranum uppskriftum.
ZUCCINIPOTTRÉTTUR
1 laukur, 1/2 blaðlaukur, 6-8 kartöflur (meðalstórar), 2 zuccini (kúrbítur), 3 msk ólífuolía, 2 dósir niðursoðnir tómatar, 1 dl vatn, 1 grænmetisteningur, 1 hvítlauksgeiri (pressaður), 1 1/2 tsk salt, 1 tsk origano, 1/2 tsk timjan, 1/2 tsk pipar.
10 stórir sveppir, 1 hvítlauksgeiri (pressaður), 1/2 msk smjör, 100 gr. gráðostur.
Saxið laukinn og skerið blaðlauk í sneiðar. Afhýðið kartöflurnar og skerið í bita. Þvoið Zuccini og skerið það í cm þykkar sneiðar. Hitið olíu í djúpri pönnu og látið lauk og blaðlauk krauma í henni í smástund. Setjið kartöflur og zuccini út í og bætið síðan tómötum, vatni, teningi, hvítlauksrifi og kryddi út í. Látið sjóða í 20-25 mín
Sneiðið sveppina og látið þá krauma á sérpönnu ásamt hvítlauksrifi í smjörinu. Setjið þetta út í grænmetismaukið þegar 5 mín eru eftir af suðutíma. Látið blönduna í eldfast mót og rífið gráðostinn yfir. Bakað við 200°C í 10 mín.
DILLONS KAKA
250 gr döðlur, 1 tsk matarsódi, 120 gr mjúkt smjör, 5 msk sykur, 2 egg, 3 dl hveiti, 1/2 tsk vanilludropar, 1/2 tsk salt, 1 1/3 lyftiduft, 100 gr brytjað suðusúkkulaði.
Döðlur settar í pott og vatn látið fljóta yfir. Suða látin koma upp og þá slökkt á hitanum. Maukið haft í pottinum í 3 mín, þá tekið af hellunni, matarsódinn settur út í og hrært.
Smjör og sykur þeytt vel saman. Eggjum mætt út í, eitt í einu. Hveiti, salt, vanilludropar, sett út í og hrært. Lyftiduft og 1/4 bolli af döðlumaukinu sett út í og hrært varlega. Afgangurinn af maukinu svo blandað saman við. Súkkulaðið síðast í. Sett í smurt eldfast mót, hitað við 180°C í 30-40 mín.
Karmellusósa með kökunni
120 gr. smjör, 115 gr púðursykur, 1/2 tsk vanilludropar, 1/4 bolli rjómi ( c.a. 0,75 dl).
Allt sett í pott, suða látin koma upp. Lækkað undir og látið krauma í 3 mín. Hræra varlega í á meðan.
Kakan er borin fram volg/köld með sósunni og rjóma.
Verði ykkur að góðu.
Þar sem Hjúkkan sætti sig ekki við aðeins 8 sortir stal hún af mér saumó. Við mætum því til hennar í a.m.k. 10 sortir í kvöld
Þar sem ritari síðasta fundar er floginn burt af landinu þá ætla ég að skrifa það helsta sem rætt var á síðast fundi.
* Stefnt er að því að fara í julefrokost ferð til Kaupmannahafnar í lok nóvember eða byrjun desember. Helgarferð án barna en með mökum. Verið er að vinna í að fá tilboð í flug og gistingu. Borgar sig að panta snemma því að þetta er mjög vinsæll tími í ferðaiðnaðinum.
Þá er stóra spurningin : HVERJIR ÆTLA AÐ KOMA MEÐ ??
Þriðji grasekkjudagurinn af 10 í þessari lotu. Ennþá er allt nokkurnvegin under control og geðheilsan í lagi. Væri samt alveg til í að halda saumó til að forða mér frá enn einu leiðinda sjónvarpskvöldinu
Til hamingju með dagin mín kæra.
Staða hjúkrunarstjóra á heilsugæslusviði stofnunarinnar er laus til umsóknar.
- held samt að ég fái ekki kallinn með mér. En staðan er spennandi.
Er að reyna að finna stað í íbúðinni minni fyrir nýju “mubluna” mína frá Bang og olufsen. Vann nefnilega “heddsett” frá Bang og olufsen á föstudaginn. Hefði nú ekki verið á móti því að hafa frekað fengið hljómflutningstæki
og er þrítugur. Til hamingju með það!
En hjúkkan á líka afmæli í dag og mér finnst það mikið merkilegra þó hún hafi ekki komist í fréttablaðið í tilfefni dagsins. Innilega til hamingju með daginn, kossar og knús að norðan;-)
