You are currently browsing the monthly archive for júlí 2007.

Óska deildarstjóra til hamingju með daginn og líka með flutninginn.  Bóndinn heiðraði deildarstjóra með því að fæða lítið ljón í dag, drengurinn er 14 merkur og 52 cm :-D

Óska fjölskyldunni fyrir vestan innilega til hamingju með snúllann, geri ráð fyrir að systurnar séu að rifna úr monti núna yfir krílinu.

-Breytt útlit í tilefni dagins :-D

Jæja góðu konur.  Nefnið mér nú góða bók eða bækur sem ég get tekið á bókasafninu. Vantar hugmyndir.  Er að dúlla mér við að taka því rólega þessa dagana og langara að lesa og lesa og lesa…………..

Sælar skvísur. 

Jæja þá er loksins komið að því.  Við erum víst að koma til landsins 1. ágúst og verðum í tæpar 2 vikur. 

Það væri nú gaman að getað komist í smá hitting.  Við ætlum að fara smá vestur og hitta fjölskylduna en það er ekki komið á hreint hvernær það verður. 

Það verður gaman að sjá ykkur og ykkar.  Það er allt of langt síðan ég var á íslandi og mér á ábyggilega eftir að líða eins og ferðamanni, hef heyrt af öllum breytingunum fyrir sunnan.  ;)

Við sjáumst vonandi í águst.

Turilu.

….rakst á þetta í geymslunni hjá móður.

Hvað væri lífið án lita?

Litlaust

Líf-líf án lita engin tré.

Líf-líf án lita enginn gróður.

Líf- líf  án lita engar kindur. Kindur.

Líf- líf án lita engin dýr.

Líf-líf án lita litlaust líf.

Já, – svona væri líf án lita,

Líf án lita,-

líf án lita, ekkert líf.

…..ætli höfundurinn sé eithvað að semja þessa dagana ???!!!

Ég er flogin á vit menningarinnar :) Verið nú duglegar að setja inn slúður frá markaðsdögunum svo ég hafi eitthvað að lesa þegar ég kem heim aftur!

Costa del Sol hvað? Reykjavík er málið. Maður drífur sig heim úr vinnunni til að fara í sólbað dag eftir dag. Liggur við að ég sé farin að vonast eftir einum rigningardegi til að ég nenni að gera eitthvað innanhúss áður en allir leppar verða orðnir óhreinir og leirtauið skríður sjálft í uppþvottavélina. Þessi mynd var tekin í dag af okkur Hjúkkunni að njóta sólarinnar.

Þar sem þið kvenfjelagskonur eruð flestar á leið vestur á bóginn óska ég ykkur öllum góðrar ferðar nær og fjær. Verið duglegar að safna sögum fyrir næsta hitting og njótið þess að slúðra um þær kvenfjelagskindur sem eru fjarverandi :D