You are currently browsing the monthly archive for september 2007.
Jæja dömur mínar ég var að flétta Fréttablaðinu í rólegheitunum þegar ég rakst stóra auglýsingu um ferð með Iceland Express til Köben á 5900 aðra leið með sköttum og gjöldum. Ferðatimabilið er til 30 nóv og sala hefst á morgun 19. Eru einhverjar dagsetningar orðnar öruggar, ég væri t.d til í að fara út 23 nóv, þá helgi. Hvað segið þið, nú er að hrökkva eða stökkva á svona góð tilboð.
yfir og út
Húsfrúin
Þá er hann loksins mættur, hjúkkustrákurinn. Kom í heiminn kl. 18 og var 17 merkur og 56 cm.
Hjúkkufjölskyldan fær hjartanlegar hamingjuóskir
Hafðu það gott í dag. Nemakallinn vís til þess að skella í eina franska fyrir afmælisbarnið. Nú er komin pressa á hjúkkustrákinn að mæta í heiminn í dag
Kossar og knús!!!!!!
