You are currently browsing the monthly archive for nóvember 2007.
Ég er orðin svo spennt að heyra frá Nemanum. Heyrði að hún væri búin að selja og kaupa ??
Langar líka auðvitað að frétta af öllum hinum og þeirra stússi. Löggan búin að standa sig vel undanfarið.
Ég og mín börnh erum á H10 og verðum fram á sunnudag. Legg ekki í lengra blogg á antik tölvuna hér
10 dagar í jólamatinn á Lækjarbrekku…….namm namm.
Fékk litla frænku í morgun í Danmörku. Allt gekk vel. Verðið eiginlega að skoða bloggið hjá mömmunni (eða hennar ritara af atburðum), alveg dásamlegt – getur ekki bara beðið og verið róleg
Í mars var ákveðið að vinnan mín færi saman til London í árshátíðarferð. Og auðvitað skráðum við okkur. Í sumar (ágúst) hættum við svo við úr af persónulegum ástæðum (er þetta ekki í tísku núna).
Síðan þá hafa gefist nokkur tækifæri að bætast aftur í hópinn en ákvörðunin um að hætta við alltaf verið ofan á og við ekkert ósátt við það.
Svo í gærkvöldi fengum við fréttir af því að hjón í hópnum þyrftu sennilega að hætta við út af persónulegum ástæðum. Allt í einu rukum við í “eigum við ekki bara að skella okkur” gírinn, redduðum pössun og ætluðum að láta vaða.
En svo í morgun hættu þau við að hætta við og við hjónin alveg geðveikt skúffuð. Ekkert unnið í dag, bara googlað á netinu – leita að öðrum ferðum en allt meira eða minna uppselt.
Dagurinn í dag fer í að lauma laxerolíu í kaffið hjá einhverjum í hópnum eða að reyna ýta einhverjum niður stigann - er það ekki rétti andinn?
Sumt er bara skrítið,Mér var allt einu hugsað til Rannveigar systur í dag og fannst ég verða að hringja í hana strax. Ég hringdi og Viðar svaraði og sagði að ég hefði rétt misst af henni þannig að ég spjallaði bara við hann, eftir svona 5 mínutur hringir gemsinn hjá honum og hann segir að Rannveig sé að hringja og ég bíð en hann talar dönsku í símann. Kemur svo í símann og segir að Rannveig hafi lent í árekstri en það sé allt í lagi með hana en hún er í sjokki, ég kveð og bið hann að hringja í mig þegar hann veit meira. Hún er send á sjúkrahúsið og verður þar í nótt en það virðist vera allt í lagi með allt nema henni er illt í fótunum. Málið var að það fór bíll yfir á hennar vegahelming, keyrði á Rannveigu og bíllinn hennar fór yfir á öfugan vegarhelming og þaðan ofan í skurð og ekki nóg með það heldur bættust 7 bílar við í árekstrinum. Mér finnst alveg ótrulegt hvernig ég varð bara allt í einu að hringja í hana.
kv húsfrúin
Þetta er frétt á mbl þar sem segir að því hærri laun sem konur hafa því færri húsverk vinna þær. Fræðingarnir segja að það sé vegna þess að þær hafi efni á að borga öðrum fyrir að þrífa fyrir sig. Ég held hins vegar að konur þurfi bara að vinna svo helvíti mikið fyrir þessum háu launum að þær hafi hreinlega ekki orku til að sinna heimilisstörfunum…
Það er gott að muna að þú fitnar ekki af því sem þú borðar á milli jóla og nýjárs heldur af því sem þú borðar á milli nýjárs og jóla……..
Jæja, þá er bara 1 dagur eftir í sælunni, vinna á mánudaginn. Bullið frá mér fer því að minnka.
Í frettum sl. vikur hefur mikið verið fjallað um að fatlaðir einstaklingar séu misnotaðir. Í fréttum vikunnar á RUV (eða í Kastljósi) var nánast upp á dag fjallað um kynferðisafbrotamenn og hvað væri hægt að gera til þess að halda þeim frá fórnarlömbum sínum, t.d. með því að banna þeim að vinna á stöðum þar sem hugsanleg fórnarlömb eru vistuð (skólar, leikskólar og þess háttar). Ein af leiðunum átti að vera sú að skylda umsækjendur til þess að skila inn sakavottorði. Eftir minni bestu vitund, hanga brot inni á sakavottorði í 3-5 ár eftir alvarleika, þ.e. vottorði sem maður sjálfur fær hjá sakaskrá. Sem þýðir að í einhverjum tilfellum er brotið/dómurinn horfinn af vottorði þegar brotamenn ljúka afplánun.
Annað, var að lesa viðtal við nýinnfluttan Íslending, sem var “bjargað” af hópi Íslendinga úr refsivist í Texas. Kom fram að hann væri að skrifa ljóð og verður með upplestur í dag en svo væri hann að vinna á sambýli fyrir fatlaða. Ég las nú reyndar aldrei dóminn yfir þessum manni og hef aldrei fengið almennilega botn í hver brot hans voru, en einhvernveginn finnst mér eins og það hafi verið kynferðisbrot (gegn barni). Finnst fréttaflutningurinn ansi mikið skarast þessa dagana … Sumt í lagi, annað ekki! Bíðum og sjáum hvort íslenskir fréttamenn hampi fyrrverandi nágrannanum í sínum fréttum ef hann fær vinnu á sambýli fyrir fatlaða.
Var að horfa á kastljós og niðurstaðan er þessi:
Fólk er misklikkað
Við vinkonurnar höfum verið misheppnar með nágranna.
Er ekki að tala um kallinn sem spilaði eftir krassi.
Er eitthvað meira um þetta að segja???
Það er nú gaman að segja frá því að ég frétti nemendur á öðru ári í hjúkrunarfræði lesa grein eftir hjúkkuna okkar
Jæja, þá er aðgerðin mikla búin. Gekk mjög vel, hélt í fyrstu að maðurinn hefði bara svæft mig og sett í teigjusokka en svo sýnist mér að hann hafi potað 14 sinnum í mig og rispað á löppunum. Fyrir utan að vera blá og marin frá tám upp í hné er ekkert að mér. Katlan er dugleg við að syngja þessa dagana og uppáhaldslagið hennar, um Bangsimon, á vel við mig þessa dagana. Það hljómar einhvernveginn svona:
sit ég hér á grænni grein og geri fátt eitt annað,
éta hunang, borða smjör og bíta (???) er bannað
Svo kemur viðlag og svo eitthvað í þessa áttina:
vatnið vex og vex og ég verð að fara úr mínum húsum
enn sit ég hér og borða úr mínum krúsum…
Eini munurinn á okkur Bangsa er að ég ét súkkulaði og eitthvað betra en hunang og smjör.
Hins vegar hef ég komist yfir ansi margt á þessari viku, búin að lesa nýju bókina hans Arnaldar, kláraði að prjóna stóra kjólinn og festi tölur á allar tölulausar lopapeysur hússins, svo að það er allt að verða nothæft. Ég er líka komin á 6. þátt í nýju despó-seríunni og samt sef ég ca. 16 tíma á sólarhring. Strax byrjuð að hlakka til þess að komast á eftirlaun …
