You are currently browsing the monthly archive for desember 2007.

Sendi öllum kvenfjelagskonum nær og fjær hugheilar jóla- og nýársóskir með innilegum þökkum fyrir allar dásamlegu söngstundirnar á árinu sem er að líða. Megi gæfa og gleði fylgja ykkur í amstri dagsins og megi jólamaturinn renna ljúflega niður án þess að valda magakrampa eða bjúg.
Jólakúlan á Nesinu.
ég er orðin háð þessum… eins gott að ég freistist ekki til að spila hann í vinnunni
Þetta kemur skapinu í lag ( ekki að það sé samt slæmt fyrir).
Grindverkur hamlar heimilisþrifum.
Karlinn að klikkast á að enginn þrífur nema hann.
Kerlingin með móral yfir að karlinn þurfi að gera allt.
Jólin nálgast.
Hvað eiga karlinn og kerlingin að gefa hvort öðru í jólagjöf?
Hugs hugs.
Tvær flugur slegnar í einu höggi og ákveðið að kaupa ryksuguvélmenni í sameiginlega jólagjöf
Er ekki stemmning fyrir morgundeginum ?
Ég er amk orðin mjög spennt að hitta ykkur, borða góðan mat, slúðra (treysti á að það verði amk eitthvað um það), fara út með kallinum án barna, fá mér eitt rauðvíns eða hvítvínsglas og dressa mig upp í kjólinn sem ég var að kaupa mér
Mig vantar ráð með kaffivélar. Þið konur sem eigið svoleiðis, þá er ég að tala um fyrir einn bolla, hvernig vélum mælið þið með.
Pokavélar, espressovél eða vél sem gerir allskonar kaffi ??
Nú stendur yfir leynivinavika í vinnunni minni. Búið að vera mjög gaman, og á hverjum degi fær maður einhverja góða gjöf eða glaðning. Mjög skemmtilegt að fylgjast með fólki skjótast á milli borða og lauma gjöfum og glaðningum á borð leynivinar eða að fólk er að finna glaðninginn sinn á kaffistofunni.
Mæli með þessu – virkar vel á móralinn (ekki það að hann hafi verið í ólagi) en þetta er samt mjög skemmtilegt!
Komin með barnapíu fyrir bæði börnin og er farin að safna mjólk
Hlakka til að sjá ykkur konur og menn.
