You are currently browsing the monthly archive for janúar 2008.

Kíkti inná bloggið hans Kalla Hallgrims og þar var þessi skemmtilega getraun “hver er Víkarinn” og aldrei sliku vant þá þekki ég hann :)
Stal þessu af síðunni hans (ekki segja honum)
Getið þið giskað, það er bannað að fara á síðuna hans Kalla til að fá svarið.
Víkarinn sem ég spyr um var á sínum unglinsárum, og fram á fullorðinsaldur mikill íþróttamaður. Hann lagði stund á sund, skíði, fótbolta og körfubolta. Ég hygg til að mynda að fáir Bolvíkingar hafi náð eins miklum frama í körfuboltanum og hann. Hann hefur leikið með liði (eða liðum) í efstu deild. Hann vann til verðlauna í flest skipti sem hann tók þátt í íþróttakeppni. Á skíðunum hafði þessi íþróttamaður fallegan og yfirvegaðan stíl. Hann er ekki eini íþróttamaðurinn í fjölskyldu sinni. Á vestfirskan mælikvarða eru fleiri afreksmenn í íþróttum í þeirri fjölskyldu. Foreldrar hans sóttu jafnan velflesta íþróttaviðburði í bænum og lögðu oft land undir fót í þeim tilgangi að fylgjast með keppni annars staðar á landinu. Hann heitir tveimur nöfnum.
Húsfrúin

Þetta var sönglað í gríð og erg á laugardagskvöldið.  Mikið fjör og mikið gaman.

Fyrir örfáum árum síðan, þegar við vorum ca. 15 ára, fór körfuboltafélag kvenna í keppnisferð til Borgarness eitthvað vorið.  Anna Edd. skipulagði ferðina enda var hún þjálfari okkar þá.  Fyrir ferð var Anna (Edd) alltaf að dásama manninn sem hún var í samskiptum við, hann Indriða, með fallegu röddina og hún gat ekki beðið eftir því að sjá þennan unga myndarlega mann.  Man að það var mikið hlegið þegar við sáum “stöntinn” hennar Önnu, okkur fannst það amk. ekki þá.

Haldiði að umræddur Indriði birtist svo bara ekki á sviðinu í félagsheimilinu á laugardaginn og hélt uppi fjörinu allt ballið, eftir að hafa stjórnað fjöldasöng.  Maðurinn er þá ekki bara íþróttafulltrúi í Borgarnesi, heldur líka Geirmundur Valtýsson síns svæðis!  Spilaði á hljómborð og söng fullt af gömlum slögurum og sló alveg í gegn;-).

Læt ykkur vita næst þegar stuðbandalagið er á ferð, svo að þið getið nælt ykkur í miða.

ps. þetta útlit á síðunni okkar er til þess að undirstrika þunglyndið og deyfðina yfir henni – skelfilegt!  Er búin að gleyma hvernig á að breyta lúkkinu – endilega drífa í því og fara svo að skrifa aftur, ekkert væl !!!!!!!!! 

Ég skellti mér til London um helgina með dags fyrirvara og kynntist Primark.  Geggjuð búð.  Fór í gegnum hana á smá hraðferð en labbaði samt út með 2 kápujakka, 1 buxur, 1 veski, 5 boli, sokka og 2 hálsklúta.  Fyrir þetta allt borgaði ég 10000 kr.isl.  Ótrúlegt.

Þorrablót kvenfjelagsins fellur niður í ár :(

Ég hugga mig við að vera hvort eð er ekkert í partífílingnum þessa dagana en vona samt að þetta séu ekki alveg endalokin á þessum árlega viðburði hjá okkur.

Gleðilegt ár dömur og takk fyrir árið sem er að líða.

Við brölluðum nú heilmikið saman á síðasta ári og vonandi heldur það áfram á þessu þó svo að  það fækki alltaf meira og meira í hópnum á höfuðborgarsvæðinu. 

Ég stefni amk á að heimsækja Lögguna, liðið fyrir vestan og í Köben á þessu ári. Vonandi tekst mér að framkvæma það.

En næst á dagskrá fyrir utan venjuleg fundarstörf en ÞORRABLÓTIÐ.  Hverjar ætla að mæta þangað ???  Held það sé 2.febrúar.

ÉG MÆTI.