You are currently browsing the monthly archive for mars 2008.

Heyrði í hjúkkunni áðan og vorum að tala um hvað við værum orðnar gamlar og þreyttar, hún var að lýsa páskavikunni og það var einhvernveginn þannig að þetta var alveg eins og í gamla daga; skíðað allan daginn en svo reyndar engin orka fyrir djamm um kvöldið …

Upplifði þetta sama í DK, voða gaman í tivoli og svoleiðis á daginn en farið í háttinn kl. 8 (eða svona um það bil)

Sendi ykkur hér hugmynd af nýjum leik, ef við skyldum nú kannski einhverntímann hittast og gera eitthvað..  Leysir af gamla góða eldspýtustokkleikinn og partýspilið …..

Góða helgi!!!!

Drykkjuleikur dauðans!!

Þið þurfið spilastokk og allir að vera með drykk!

ÁSINN - Taka einn sopa

TVISTUR – Taka tvo sopa

ÞRISTUR – Söngleikur! Þú nefnir hljómsveit/söngvara og sá sem er fyrstur að syngja eitthvað lag með hljómsveitinni/söngvaranum má velja hver á að drekka sopa

FJARKI – Spurningaspil! Sá sem dregur, velur einhvern af handahófi og spyr hann spurningu sem hin/n verður að svara á móti með annarri spurningu eins fljótt og hægt er… ef það tekst, þá spyr sá sem dró spilið næsta og sá sem klikkar fyrstur að svara tilbaka með spurningu þarf að taka 4 gúlpsopa.

FIMMA – Dómínó! Allir byrja að drekka á sama tíma og mega ekki hætta fyrr en sá sem er á undan manni hættir

SEXA - “Ég hef aldrei…” Sá sem dró spilið segir frá einhverju sem hann eða hún hefur aldrei gert, en sá sem hefur nokkurn tíman gert það þarf að drekka tvo sopa!

SJÖA - “Ég hef….” Öfugt við sexuna! segir e-ð sem þú hefur gert og þeir sem ekki hafa gert það, þurfa að drekka !

ÁTTA – Flokkaspil! Sá sem dregur segir eitthvað orð og hinir eiga að segja eitthvað sem er nokkurn veginn hægt að tengja við það orð (semsagt gengur hringinn)… dæmi: tannkrem, tannbursti, colgate, vaskur, tennur, vatn…. sá sem ekkert orð finnur þarf að drekka tvo sopa

NÍA – Rímnaspilið! Sá sem dregur segir orð og svo gengur hringinn að finna orð sem rímar við það… sá sem ekkert orð finnur þarf að drekka tvo sopa

TÍA – Þumalkóngur! Sá sem fær tíu er þumalkóngur ! hann hefur rétt á því að setja þumalinn á borðið hvenær sem hann vill og allir hinir eiga að gera það sama og sá síðasti til þess þarf að klára úr glasinu sínu! Þumalkóngurinn getur gert þetta eins oft og hann vill þangað til næsta tía er dregin og annar þumalkóngur kominn í staðinn!

GOSI – Sníkjudýrið! Sá sem fær gosa má velja einhvern til þess að fá sopa hjá

DROTTNING – Góðmennið! Þú velur einhvern sem fær vænan sopa hjá þér

KÓNGUR - Regla! Þú matt ákveða reglu sem gildir með öllum sopum, ef að manneskjan fylgir ekki reglunni, þarf hún að taka aukasopa.

 

Ef þið hafið einhver ættartengsl við Bretland og gætuð mögulega reddað ykkur bresku vegabréfi, þá er þetta möguleiki.

Bretar halda OL í London 2012 og eiga því fast sæti á mótinu í handbolta.  Vandamálið er að það finnast engir bretar sem geta spilað handbolta, hvorki konur né kallar svo að þeir leita nú af öllum sem einhverntímann hafa spilað (eða yfir höfuð verið í íþróttum) til þess að keppa fyrir sig á mótinu.  Nú eru hátt í 30 bretar í Århus í íþróttaskólanum og eru að læra handbolta fyrir keppnina.  Landsliðskempan HS fór á æfingu með þeim um páskana og bauð mér endilega að koma með þar sem ég æfði handbolta fyrir íþróttahátíðina 1997 - kæmi sterk inn!

Nú er um að gera að dusta rykið af Handball specilal skónum, rifja upp taktana sem þið lærðuð hjá Bjarka og co í Hafnafirðinum um árið og fara á Íslendingabók.is og ath. hvort það eru ekki einhver tengsl sem koma ykkur áfram……

Langar að vekja athygli á einni frétt. Góð frammistaða hjá hjúkkunni en ansi erum við orðnar gamlar, sjáið þið aldursflokkinn!!

http://bb.is/Pages/26?NewsID=113669

Nú erum við fjölskyldan búin að vera í 6 daga í danaveldi og hafa það mjög gott.  Fórum á Bakken og hittum ný-dönsku fjölskylduna svo á sunnudaginn og fórum í dýragarðinn og svo enduðum við í hörku afmælisveislu hjá þeim um kvöldið.  Mikið fjör og mikið gaman.

Á mánudaginn fórum við með gríslingana á Strikið og ætluðum að eyða tímanum þar þangað til við færum í lestina til Århus.  Vildi ekki betur til en þar var rok og snjókoma.  Stukkum inn í einhverjar búðir og ætluðum að kaupa okkur húfu og vettlinga en nei, ef okkur hefði vantað sundföt, stuttbuxur, sólgleraugu og sólarhatta þá hefði árangurinn verið einhver …

Búin að vera hér í góðu yfirlæti, kicthenaid hrærivélin hennar Hröbbu komin í fínt lag aftur og óspart notuð til þess að galdra fram veislur.  Búin að kíkja á legolandið og eiga góðan dag þar.   Og að sjálfsögðu fórum við hjónin í Bilka og gerðum gott mót – eigum eftir laugardaginn hér í bænum og látum það ekkert á okkur fá þó svo að helv. krónan sé i 16,4 núna en ekki rúmlega 12 eins og þegar ég var hér í desember!!!!!

gleðilega páska:-)

Jæja loksins loksins,  eitthvað sem ég get skrifað.

Ég er svo aldeilis hissa á RUV.  Búið að skemmt fimmtudagssjónvarpskvöldin mín og öruggleg fleiri kvenna þarna úti.  Jú að vísu er enn verið að sýna “Brothers and sisters ” en hvað er málið með “Despó”  !!!  Ég hélt að það væri bara kvöldið í kvöld sem félli niður sýning en nei nei.  Þulan sagði annað.  “Fyrir þá sem vilja vita hvernig dagskráin er næstu fimmtudagskvöld, þá…..bla bla bla bla…..byrja 10 þátta sería á næsta fimmtudagskvöld “  Ég var svo hitta, reið, svekt og það allt saman að ég náði ekki einu sinni hvernig þáttur þetta er sem er að byrja.  Örugglega ekkert sem slær Despó við.

Í lagi að drekka vín með barn á brjósti

Nú mega konur með barn á brjósti drekka vín og áfenga drykki í hófi. Sænska manneldisráðið hefur hingað til ráðlagt konum að drekka ekki áfengi þar sem talið var að það findi sér leið í gegnum brjóstamjólkina og gæti haft skaðleg áhrif á barnið en nú hefur verið horfið frá þeirri stefnu.

Samkvæmt frétt í sænska ríkissjónvarpinu hefur sænska manneldisráðið yfirfarið öll þau ráð sem gefin eru óléttum konum og konum með barn á brjósti og komist að þeirri niðurstöðu að tími sé kominn til að færa sum þeirra til nútímans.

Samkvæmt nýju ráðgjöfinni eiga konur með barn á brjósti að geta drukkið eitt til tvö vínglös einu sinni til tvisvar í viku en óléttar konur eiga eigi að síður að halda sig frá öllu áfengi.

Vitnað er í rannsóknir Olle Hernell prófessors í ungbarnalækningum við háskólann í Umeå en hann hefur komist að þeirri niðurstöðu að hófleg áfengisneysla kvenna með barn á brjósti sé ekki skaðleg fyrir barnið.

(mbl.is)

Förum nú að hressa okkur við!