You are currently browsing the monthly archive for apríl 2008.
Til hamingju með daginn kæru fermingarsystur. Nú er bara ár í fjörið. Skemmtinefndin ætti nú að halda fund í dag finnst mér
Skemmtilegt að lesa pistla bekkjarsystra okkar á www.vikari.is já og svo auðvitað víkari vikunnar um daginn.
Var að keyra um á laugardaginn og heyrði einn gamlan og góðan smell með Smartbandinu sem heitir La líf. Var mjög vinsælt þegar við vorum ca. 10 ára og hver söng þetta lag með sínum texta.
Mundi þá allt í einu eftir ljóði sem deildarstjórinn samdi á þessum árum, eða man í rauninni ekkert eftir ljóðinu nema að það endaði “og Kjartan syngur afturábak”….
Furðulegar tengingar oft þegar maður heyrir einhver lög.
Í dag ætlaði ég að fara í húsmæðraferðalag með litla snúllanum mínum. Við ætluðum að taka morgunflugið til Kaupmannahafnar en í gærdag nældi snúllin sé í hita, rúmar 40 gráður, og við hættum við allt saman.
Nú er ég bara heima í Pollyönnuleik: Það er ekki komið nógu gott veður í Köben, verður betra eftir einhverjar vikur. Gengið er alls ekki nógu gott , gæti ekkert verslað. Snúllinn er enn á brjósi og ég get drukkið minna af bjór og hvítvíni en mig langar.
Vona samt að veikindin gangi fljótt yfir.
Loksins lét prinsinn sjá sig. Hann hefur greinilega haft það mjög gott í bumbunni en fyrir þær sem ekki hafa frétt það þá kom hann í heiminn í kvöld kl. 21:37. 4060 g og 53 cm. Heilsast öllum vel.
Ég og mín fjölskylda óskum nágrönum okkar til hamingju og bjóðum nýja nágranan okkar velkominn í heiminn. Hlökkum til að sjá hann
