You are currently browsing the monthly archive for maí 2008.

Í dag fæ ég nýjan hund, á morgun nýjan bíl og í næstu viku nýtt fellihýsi.  Vona að kallinn fari ekki að skipta mér út fyrir nýja:-)

 

ps. þetta innlegg er sett inn til þess að vera ekki með auða viku, en að meðaltali erum við að setja inn nýjan póst einu sinni í viku.  DJÖFULL ERUM VIÐ LÉLEGAR!

Gleðilegt sumar!

ps2: hægt að sjá hver setur inn mest – neminn er kominn uppfyrir húsfrúnna – taka sig á núna stelpur.

Að hugsa sér. Á þessum fallega degi á heimasætan 15 ára afmæli. Í tilefni dagsins býður hún nokkrum vinkonum í smákökur og te. Og ég get ekki lýst því hvað ég er fegin að hún fetar ekki í fótspor mín en ég hélt víst ekki alveg eins huggulegt afmælisboð…

Mér finnst makkarónugrautur asnalegur og vondur matur. Ég sé ekki mun á því að éta makkarónur með mjólk og kanil, spaghetti með mjólk og kanil eða pastaslaufur með mjólk og kanil.

Þetta var nöldur dagsins.

Góðar stundir.

Skondin saga af skemmtilegum misskilningi:

Í vikunni var ákveðin stúlka sem við þekkjum Víkari vikunnar.  Hún sendi kynninguna á tengdamóður sína sem bjó á stúdentsárum sínum í Danaveldi.  Hún sá fyrirsögnina “Víkari vikunnar ” og tengdi það strax við danska orðið vikar ( vonandi skrifað rétt danska kona) sem á að þýða afleysingarmaður.  “En skemmtilegt, tengdadóttirin afleysingarmaður vikunnar”   Henni fannst þetta alveg passa þar sem tengdadóttirin hafði verið að ræða við hana fyrir stuttu síðan að það væri á planinu að leysa af á sínum heimaslóðum í sumar og hélt að allir sem kæmu í afleysingu fengju kynningu á heimasíðu bæjarins :)   Hún hafði ekki hugmynd um að heimafólkið kallaði sig Víkara …………………hehehehehehe.

Ég vaknaði, teygði úr mér og kveikti mér í sígarettu uppi í rúmi. Þá mundi ég allt í einu eftir því að litla barnið lá sofandi við hliðina á mér og það hefði nú kannski ekki gott af óbeinum reykingum.

Jamm þetta dreymdi mig í nótt. Einhverjir draumaráðningarsérfræðingar í hópnum?