You are currently browsing the monthly archive for júní 2008.
Til hamingju með stóra daginn og titilinn þroskaþjálfari.
Því miður komst ég ekki í veisluna hjá þér en ég mun koma í kaffi þegar að ég kem í bæinn aftur. Vonandi áttiru góðan dag með fjölskyldu og vinum
Jæja þá er þetta dásamlega fæðingarorlof að enda, síðasti dagurinn í dag. Á morgun tekur alvara lífsíns við og ég mæti til starfa sem hjúkrunarforstjóri. Litli kútur verður hjá 14 ára gamalli barnapíustelpu og ég verð nú að segja að ég er með smá hnút í maganum yfir því. Ekkert mál að fara að vinna aftur, en að litli kútur verði bara hjá barnapíu allan daginn er svolítið skrítið. Er þetta ekki alltaf meira mál fyrir mömmurnar en blessuð börnin. Þau eru bara fegin að fá að sjá einhvern annan en mömmu allan daginn
Þetta er samt ekki langur tími. Vinna 9-14 í 3 vikur og svo fer ég í sumarfrí í 3 vikur, vinn í 2 vikur og svo sumarfrí í einhverjar vikur.
Kannski maður geti nú bloggað eitthvað í vinnunni ……………..hehehe. Ekki hætta á að yfirmaðurinn kvarti þar sem ég er yfirmaður
Ætla að halda áfram að njóta síðasta fæðringarorlofsdagsins.
p.s vonandi rætist samt ekki draumurinn sem mig dreymdi í nótt. Fattaði á hádegi að ég hafði gleymt að fara í vinnuna !
Nú mér sýnist að fína smsið mitt hafi eitthvað klikkað og jafnvel logið því að það yrði partí á Egilsstöðum eystri. En mikið væri gaman ef Norður-deild kvenfjelagsins sæi sér fært að mæta á Egilsstaði syðri næsta laugardag kl. 17.
Til hamingju með afmælið júní-konur! Ég er í afslöppun í foreldrahúsi og er aftengd tíma og rúmi. Lofa að skrifa til ykkar afmæliskveðjur næst þegar þið eigið afmæli!
Til hamingju með afmælið Löggukona. Vonandi hefuru það gott í dag.
Já og til hamingju ég líka
Búin að bíða í fimm daga eftir því að sjá þessa kveðju hér og gafst upp og skrifa þetta bara sjálf …….hahahahahahahhaha.
