You are currently browsing the monthly archive for júlí 2008.
Til hamingju með afmælið þroskaþjálfi (já, og bóndasonurinn líka). Vonandi að þú sért búin að jafna þig eftir hamaganginn í slökunarnuddinu og eigir góðan dag
Nýkomin úr víkinni og búin að eiga góða daga með enn betra fólki – söknuðum þó þroskaþjálfa og húsfrúarinnar.
Í gær fór ég í slökunarnudd í boði nokkurra kvenfjelagskvenna. Þar var ég hnoðuð eins og kleinudeig og lamin eins og harðfiskur. Ég velti fyrir mér hvernig nudd sem er ekki slökunarnudd færi fram, eru þá notaðar svipur og kylfur? Eftir klukkutíma strit hjá nuddaranum lá ég samt mjög slök og fín á bekknum og þurrkaði tárin.
Í dag líður mér eins og ég hafi borið Skrögg á herðunum heilan Neshring. Getur verið að nuddarinn hafi verið að pynta mig til að ég kæmi aftur til að láta nudda úr mér verkina?
*Þetta var samt mjög kósí, hefði ekki viljað sleppa því
Vek athygli á því að það er að byrja útsala í Bjarnabúð. Fyrstur kemur fyrstur fær …
Heimild: vikari.is (og þar má líka sjá agalegar ljósmyndir af gerð varnargarða fyrir ofan bæinn – lítur illa út núna, vonandi lagast þetta eitthvað þegar framkvæmdum lýkur)
Meira er ekki um málið að segja.
Landlæknir hefur gjört kunnugt að undirrituð hafi leyfi til að kalla sig þroskaþjálfa. Héðan í frá er ég því ekki deildarstjórinn heldur þroskaþjálfinn.
Annars allt fínt að frétta bara, er á kafi í menningarlífinu þessa dagana - allavega dugleg að horfa á sjónvarpið, fara á bókasafnið og elta Brúðubílinn…
Í dag barst mér ávísun á dekur í Mecca Spa. Takk kærlega fyrir, ég er í sjöunda himni og enda örugglega í þeim tíunda þegar ég fer í dekrið :)

