You are currently browsing the monthly archive for ágúst 2008.
Í dag var ég með ungunum mínum heima í stofu og skellti á nýjasta cd-inum mínum, Mamma mia. Um leið og fyrsta lagið byrjaði að hljóma byrjuðu þau bæði að dansa og klappa og vildu meira og meira. VIð enduðum á að hlusta x2 á diskinn
Þau hafa greinilega tónlistarsmekkinn frá móður sinni. Næst prófa ég að spila Sálina
Annars er allt gott af mér og mínum. Byrjuð að vinna á heilsugælsunni í hverfiu mínu sem er voða gaman og næs að geta labbað til og frá vinnu og að sækja ungana. Er í 80% starfi, vinn 3 heila daga og 2 daga til hádegis. Voða ljúft. Litli kútur sem er að verða eins árs !!!!, er hjá dagmömmu og gengur það rosalega vel. Stóra stúlkan komin á næst elstu deildina á leikskólanum, styttist í það að hún fari í skóla. Þetta gengur víst svona, þau eldast blessuð börnin þó svo að við gerum það ekki
Deildarstjórinn dásamar það fyrir nokkru að eiga góða að á landsbyggðinni. Sömuleiðis er mjög gott að eiga góða að í vesturbænum þegar maður er á ferðinni í pissuspreng.
Mætti degi of seint í saumó og skaust inn til deildarstjóra til þess að létta á mér og fá bæði deildarstjóra- og stubbaknús. Ekki amarlegt það! Samt súrt að missa af öllum hópnum kvöldið áður.
Nú fer suðurferðum að fjölga með haustinu, læt verða að því í næsta kvöldstoppi að boða til saumó – hjá einhverri ykkar
… má ég stela honum af húsfrúnni? Ég verð nefnilega húsbónda- og unglingslaus frá og með sunnudeginum og á erfitt með að fá pössun.
sagði á forsíðu bylgjan.is á föstudaginn (hugsa fleiri “urrrr” en ég?). Kellingin smellti á “hafðu samband” hnappinn og skrifaði póst um að svona vildum við ekki hafa þetta frekar en á Reykjavík. Veit reyndar að maður er á Hólmavík og Húsavík – en er þetta.
Hálftíma síðar þegar ég var að hlusta á Bylgjuna var umræða um þetta. Að þeirra sögn hafði “einhver íslenskufræðingurinn” samband og kom þessu á framfæri og þeir ætluðu að lofa að vanda sig í útsendingu það sem eftir var dags. Og þessu var breytt á heimasíðunni
Nölduskjóða dagsins hafði því sínu fram.
Mér þótti nokkuð illt þegar kvenfjelagskonur fóru að flytjast frá Höfuðborgarsvæðinu út um hvippinn og hvappinn. En á ferðalagi mínu um landið var einstaklega huggulegt að sækja Lögguna og fjölskyldu heim þarna í Hvappnum. Við þökkum kærlega fyrir okkur. Það bjargaði deginum að fá góðan félagsskap, kaffi og brauð
Við landsbyggðartútturnar í hópnum skelltum okkur á flugmiða til köben 18-21 sept. Tilgangurinn er þessi: a: Húsmæðraorlof með Auði heimsborgara og vonandi Dönsku konunni, b: Versla bjór borða bjór sofa bjór
Vildum bara deila þessu með ykkur ef e-n langar til að bætast í hópinn!
Löggan og neminn
