You are currently browsing the monthly archive for september 2008.

Heyrst hefur að tvær kvenfjelagskonur hafi verslað sér jólaföt á e-bay. Önnur fékk sér kjól af Victoriu Beckham en hin af Amy Winehouse. Það er því ekki að ástæðulausu að kerlurnar eru tíðir gestir á ónefndri líkamsræktarstöð og hafa svarið við bók Gillian McKeith að láta ekki sælgæti inn fyrir sínar varir fyrr en þær geta rennt kjólunum upp.

Hvaða tala kemur næst í þessari talnaröð?     2,5,10,17,26,…….?

A.35       B.36        C.37          D.38

Erum búnar að hafa það mjög gott hér í DK, versla vel, borða, drekka og spila og margt fleira.  Dagurinn í dag var góður, fórum og heimsóttum dönsku konuna, LOKSINS, og fengum frábærar móttökur, 20°hiti, sangría og sól og góður matur - mælum sko-ho með heimsókn þangað!

Kirsuberjavínið hennar Auðar hefur algjörlega slegið í gegn en þó hefur 1/4 hópsins hér drukkið furðanlega lítið (?????)

Nú er Benni búinn að skila af sér greininni og skorar hvorki á húsfrú né nema – getið verið rólegar í bili.  Hann skorar þó á Jónas Aðalsteins, sem er vinur bræðra húsfrúar, svo að hún hlýtur að vera volg næstu færslur … :-)

Hvernig var þetta annars með miðvikudaginn – hver ætlar að halda saumó og kl. hvað?

Fyrir nákvæmlega ári síðan var ég stödd á fæðingardeildinni.  Lá í pottinum og reyndi að láta fara vel um mig í hláturgasvímu.  Ég var að því komin að gefast upp og biðja um mænudeyfingu en ljósmóðirin sem var á vaktinni talaði mig af því ( hún vissi að ég vildi helst ekki deyfingu) og hjálpaði mér að anda í gegnum hríðarnar.  Ég er rosalega þakklát henni fyrir stuðninginn eins og öllum hinum ljósunum sem hafa hjálpað mér að koma mínum börnum í heiminn ( sem eru nokkuð margar miðað við að ég á bara 2 börn, ég er sko ekkert að flýta mér að þessu  !! )

Þannig að ég styð ljósmæður í sinni kjarabaráttu 150 % amk.

Hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún Ása, hún á afmæli í dag!

Til hamingju með daginn og hlakka til að hitta þig eftir 11 daga og fara til Köben:-).  Er aðeins farin að hita upp og skoða Bilkabæklinginn – miðað við síðasta bækling verður ekkert verslað og bara spjallað og slúðrað….. Forljótur! 

En það kemur nýr eftir þennan ,,,,

Knús að norðan