You are currently browsing the monthly archive for október 2008.

Minni á fund suðursveitarinnar í kvöld kl. 20 vestast í bænum.  Fulltrúi vestursveitarinnar mætir með slúðrið að vestan.

Heitt á könnunni og á diskum.

Jæja, nú reynir á minni ykkar!

S.l. vetur var endurútgefið lag sem Óðinn Valdimarsson gerði frægt hér um árið; ég er kominn heim.  Það voru annars vegar Bubbi og Björn Jörundur og svo Siggi í Hjálmum sem gáfu þetta lag út aftur.

Þetta lag kemur fyrir í þekktu atriði í enn þekktari íslenskri bíómynd og þá í flutningi Óðins; spurningin er því: hvað heitir myndin og bónusinn – í hvaða atriði er þetta lag spilað?

Í stað þess að missa vitið yfir B&B í morgun hrærði ég í skúffuköku til að gleðja bónda minn. Eftir að kakan var komin í ofninn hreinsaði ég hrærurnar og sleikjuna vandlega og af bestu lyst. Og á meðan velti ég því fyrir mér hvort fullorðnar konur éti deig svona almennt. Ég hef til dæmis aldrei séð mömmu borða deig. Er ég barn í líkama konu?

Jæja kvensur, það gengur ekki að láta síðuna volast niður. Þið sem nennið ekki að skrifa verðið allavega að kommenta! Og svo heimta ég kvenfjelagsfund hér á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst. Hjól kvenfjelagsins mega ekki hætta að snúast.

Gríshildur talar um það á síðunni sinni að nú sé hægt í kreppunni að kaupa hjörtu í raspi á sérstöku tilboðsverði í Bónus – get ekki sagt að það heilli en;

Við dóttirin fórum í gær og versluðum lambaskrokk í sláturhúsinu.  Keyptum 3 kg af lifur með, enda bara á 140 kr/kg; SVVOOOOO hagsýnar!

Þegar heim var komið þurfti að pakka kjötinu í poka og svo í frysti.  Hluti af súpukjöti var óætt vegna fitu; hvað gerir maður þá?

Nú auðvitað 2 kg af kæfu, en ekki hvað??  Ég get svarið það að mér fannst ég myndalegri en húsfrúin í gær þegar ég var að mauksjóða og mauka kjöt og lauk; en það tókst vel.  (reynið að toppa þetta, Bóndinn má það samt ekki veit að hún kann að búa til sviðasultu og slátur)

Þá vitið þið það, í næstu heimsóknum verður ekki boðið upp á kjúklingasúpur og dillonskökur, bara lifrarpottrétt og brauð með kæfu (neminn náði síðustu almennilegu heimsókninni….)

Og verið alltaf velkomnar :-)

Fékk þetta sent í pósti í dag :

Gulli og perlum að safna sér,
sumir endalaust reyna,
vita ekki að vináttan er,
verðmætust eðalsteina.

Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.

Höf: Hjálmar Freysteinsson, lækni og hagyrðing á Akureyri.