You are currently browsing the monthly archive for nóvember 2008.
Skín í væna vínflösku,og huggulega bjóra
jólaglögg og eplasnafs,allt það ætl’að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér, látum ill’í desember
burt með sokk og skó,hér af vín’er nóg.
Ó hvað ég elska jólin, von’ég hitt’á stólinn.
Ég elska ykkur alla hér, og ég elska desember
ég elska rokk og ról, ég elska þennan bjór
er’etta tunglið eða sólin, vá, hvað ég elska jólin.
Ég elska ykkur alla hér, og ég elska desember
ég elska rokk og ról, ég elska þennan bjór
og vá, hvað ég elska jólin
… oj! ég æld’á kjólinn.
Jæja nú reynir á ykkur. Kunni þið einhverja skemmtilega samkvæmisleiki ??
Það er jólahlaðborð í vinnunni hjá mér eftir rúmar 2 vikur í heimahúsi og við hjúkkurnar eigum við vera með atriðið eða leik. Það eru komnar upp hugmyndir sem mörgum finnst voða sniðugt en mér finnst ekki mikið varið í. Vesen á nýja starfsmanninum
Vandamálið er að ég er ekki með neinar hugmyndir í staðin fyrir þessar og vantar hjálp frá ykkur.
Það sem búið var að ákveða er :
1.allir með teygju um úlnliðinn og ef þú segir “nei” á sá sem þú ert að tala við að smella teygjunni þinni
2. Hlutverkaleikur. Allir draga miða með hlutverki, t.d að vera þessi jákvæði, þessi sem tekur mat af næsta diski o.s.frv. Mér finnst þetta ekki alveg passa að allir eigi að vera með hlutverk. Þetta er skemmtilegt þegar að nokkrir fá hlutverk en hinir vita ekki af því en er bara tilkynnt það seinna um kvöldi.
Jæja hvað segið þið
Heyrði í hjúkkunni í gær. Hún skoraði á mig að opna facebook síðu til þess að geta fylgst með umræðu um væntanlegt fermingarafmæli sem er víst komin á skrið þar. Mitt svar var: ALDREI Í LÍFINU!
Kannski er ég orðin gömul – þetta var skráð í fundargerð klúbbsins sem “misjafn áhugi á þeirri síðu” – en ég allavega nenni ekki svona bulli!
Skora á nefndarmenn í undirbúningsnefnd að gera eins og ´74 árg. og stofna venjulega heimasíðu (er það orðið gamaldags, eða?) þannig að allir geti skrifað inn og fylgst með.
og HANANÚ!!
Ég var að horfa á Kompás í gær og þar var talað við “aðstoðarlögregluþjón” hvað gerir hann? sækir kaffi fyrir lögregluþjónana eða opnar hurðir og svoleiðis. Fannst þetta ansi skondið því að ég hélt að lögga væri bara lögga. Er þetta fag innan lögregluskólans:)?
P.s það er ekkert smá mikill myndaskapur í alvöru löggunni okkar. ég man ekki einu sinni lengur hvernig við hekluðum sjölin hérna í den.
Þetta klikkar aldrei……….

Til hamingju með daginn Húsfrú.
Ég efast ekki um að það verði skellt í eins og eina köku í dag
