You are currently browsing the monthly archive for janúar 2009.
Trogfundur verður haldinn sunnudaginn 1 febrúar kl. 16 heima hjá hjúkkunni. Væri gott ef danska konan gæti send línu á hjúkkuna og látið vita hvaða þorramat hún borðar. Verðum svo í sambandi við hana.
Hverjar komast ?
Kommenta dálkurinn að springa þannig að það er kominn tími á nýja færslu.
Fór í bíó um daginn og sá Sólskinsdrenginn. Mynd sem ég mæli með fyrir alla, skilur mikið eftir.
Næst á dagskrá er að sjá Viltu vinna miljarð. Las bókina fyrir mörgum mánuðum og hlakka mikið til. Hún fær góða dóma.
Jæja dömur, ég ákvað að kanna hvenær hið árlega þorrablót kvenfjelagskvenna yrði haldið. Það kom í ljós að það verður 2 feb í Lídó við Hallveigastíg, hljómsveitin “hvar er Mjallhvít” spilar. Nú er bara spurning hver stemningin er fyrir að mæta á blótið og hvort dreifbýlistútturnar ætli að mæta:) En við höldum allavega privat blót í sóleyja……..
kv. húsmóðirin sem er búin að leggja í súr:)
Þá er ég komin í hóp með Löggunni. Fyrir c.a. 5 mín valdi ég beiðni á fésinu “deactivate accont” og er búin að segja bless við fésið.
Þeir vinir mínir sem vilja halda sambandi við mig geta náð í mig í síma eða í gegnum tölvupóst eins og fyrir tíma fésins.
Jæja þá eru blessuð jólin búin. Ég er nú ekki búin að taka niður jólaskrautið ennþá en stefni á að gera það í vikunni. Á hverju ári sit ég og pirrast á þessu kvöld yfir fólkinu sem er að klára flugeldana sína. Endalausar sprengingar allt kvöldið og mér finnst nágranarnir alltaf vera í samkeppni hver sprengir meira og stærri bombur. Pirr……….
Ég er kannski extra pirruð í kvöld þar sem síðasta nótt var frekar svefnlítil hér á heimilinu en yngsti meðlimurinn ákvað að vera vakandi milli kl. 2 og 6 og foreldrarnir mjög þreyttir þegar vakna þurfti til að fara í vinnu kl. 20. Dagurinn er búin að líða áfram með það í huga að fara að sofa kl. 20 og sofa í 12 tíma. En nei nei, þessir blessuðu flugeldaáhugamenn ekki alveg að gera það mögulegt.
Jæja nóg af pirri. Gleðilegt ár elskurnar.
