You are currently browsing the monthly archive for febrúar 2009.

…en nú er það ekki af völdum nammitilboðs.  Væri sko alveg til í magaverki út af nammiáti núna. 

Síðusu 2 daga hef ég verið með velgju og ónot í maganum og gæti verið við postulínið ef ég vildi.  Reyni eins og ég get að komast hjá því.

Einn af fjölskyldumeðlimunum var greindur með noro veiruna í gær eftir “Gullfoss og Geysi” í 4 daga.  Meiriháttar ástand.

ohhhh

ég þoli ekki þetta 50% aflsáttur af nammibar á laugardögum

Jæja þá er þorrablót Kvenfjelagsins afstaðið í ár. Fór það sérlega vel fram. Heimalöguð sviðasulta Húsfrúarinnar var best í heimi og berjabooztið sló í gegn. Að venju var svo slátrað flösku af amaretto. Það var ekki amalegt að láta Hjúkkuna sjá um áfengið, það var svo vel blandað að ég vaknaði hressari og fegurri en nokkru sinni í morgun.
Takk fyrir samveruna í gærkvöldi :-)

Hvar fæ ég besta hákarlinn og harðfiskinn ?  Í kolaportinu ?

Ég ætlaði að fara og versla á laugardaginn en ákvað að bíða með það fram á næstu helgi því annars væri ég búin með harðfiskinn og langt komin með hákarlinn þegar loksins kæmi að blótinu.  Fyrir utan það að ískápurinn væri vel ilmandi næstu dag.

Farin að hlakka verulega til laugardagsins.

Trogfundurinn gekk mjög vel fyrir sig og var mæting góð.  Húsfrúin og Þroskaþjálfinn mættu með sína maka og eitthvað af börnunum.  Einróma var samþykkt sú hugmynd um að hafa sameiginlegan mat svo hver og ein siti ekki uppi með fullt af afgöngum ( kreppan !! ).  Skipt var bróðurlega niður hver á að koma hvað og svo verður uppgjör á næsta fundi.  Innkaupalisti verður sendur í tölvupósti.  Ef  kvennfélagsmeðlimir á landsbyggðinni ætla að vera með á blótinu þá er bara að láta vita með nokkura daga fyrirvara og skammtarnir stækkaðir.

Á fundinum var ákveðinn dekurdagur okkar kvenfjelagskvenna og á hann að vera í maí.  Nákvæmari dagsetning kemur þegar nær dregur.  Stefnt er að því að konurnar farin í dekur og mæti svo heim til Húsfrúarinnar þar sem herrarnir verða búnir að græja dýrindis mat .  Óskadagsetnigar í kommentakerfið.

Að lokum mæli ég með kvikmyndinni “Viltu vinna milljarð” .  Fær *****

Góðar stundir.