You are currently browsing the monthly archive for mars 2009.
Í Samkaupum kostar 300 gr. spinatpoki 459 kr.
Í hagkaup kostar 200. gr. spínatpoki 599 kr.
Skildum við strax vera farin að borga fyrir þessa líka “snilldar” opnun allan sólarhringinn í tveimur verslunum?
Hvað rugl er það????
-Löggan
Tilkynningar | 24.3.2009 | Páskabingó Á fimmtudainn 26. mars kl. 20:00 verður 10. bekkur grunnskóla Bolungarvíkur með páskabingó á sal skólans. Spilaðar verða 6 umferðir og páskaegg af ýmsum stærðum í vinning. Fyrsti vinningur er páskaegg nr.7 ásamt mánaðar gjafakorti í íþróttahúsið. Ágóðinn af bingóinu rennur í ferðasjóð 10. Bekkjar. Þá verður 10. Bekkur einnig með sjoppu á staðnum.
Ætlar ekki Hjúkkan að skella sér og hirða alla vinningana?
Mig minnir að hún hafi verið ansi drjúg í að ná vinningum hér í gamladaga…
“Hvar er húfan mín, hvar er hettan mín………”
“Ég er bæjarfógeti Bastín…………….”
Kannist þið ekki við þessa síðan þið voruð litlar ?? Við mæðgurnar erum að fara á sýninguna á morgun og ég veit ekki hvort er spenntari mamman eða dóttirin. Meðan ég var að bíða eftir að svarað væri í miðasölunni rúllaði brot út sýningunni og ég held þetta verði rosa gaman hjá okkur.
Svo bíður platan og bókin eftir okkur fyrir vestan og við hlustum og lesum það um páskan eftir skíðaferðirnar.
Góðar stundir
Það er svo ljúft að vinna Keflavík þó svo ég sé ekki lengur að æfa og spila
Það held ég að þær gráti í kvöld, 3-0
Í þessu lífi er ég kona. Í næsta lífi vil ég verða skógarbjörn.
Ef þú ert björn færðu að leggjast í dvala Þú gerir ekkert annað en að sofa í sex mánuði, Ég gæti lifað með því
Áður en þú leggst í dvala áttu að troða þig út af mat þangað til þú stendur á gati. Ég gæti líka lifað með því
Ef þú ert kvenkynsbjörn þá fæðirðu ungana þína (sem eru á stærð við hnetur) á meðan þú sefur og þegar þú vaknar ertu komin með stálpuð sjálfbjarga bangsakrútt, Ég gæti sko alveg lifað með því
Ef þú ert bjarnarmamma þá vita allir að þér er alvara. Þú abbast upp á þá sem abbast upp á ungana þína. Og ef ungarnir þínir eru eitthvað óþægir, þá abbastu upp á þá líka, Ég gæti lifað með þessu
Ef þú ert björn þá BÝST maki þinn við því að þú vaknir urrandi og hann REIKNAR MEÐ því að þú sért loðin á leggjunum og með hátt hlutfall líkamsfitu.
Jebb, ég ætla að verða skógarbjörn
Dekurdýrin mín horfa á barnaefni á Stöð 2 á morgnana milli 7-7:45 meðan þau eru að klæða sig og borða morgunmat. Ég er svo sem ekkert brjálæðislega góð í íslensku en í síðustu viku voru 3 atriði sem pirruðu mig einstaklega!
Fyrst var það steypireiður sem synti um höfin – ítrekað sagði “Diego” sjáið steypireiðina, … steypireiðin syndir í kring um eyjuna… Já!
Næst var það Lúlla letidýr sem þurfti að bjarga svo að hún kæmist heim fyrir Valintínusardaginn. Þegar sólin var að setjast sagði hinn sami; við verðum að bjarga valintínusardeginum fyrir Lúllu letidýri – hvað ætlaði Lúlla annars að gera við valintínusardaginn????
Svo var það prinsinn sem kvartaði; þeir segja ,,efra og niðri” en ekki ,,efra og neðra” og samt er það fólk sem talar fyrir þetta !!!
Eins og ég sagði, þá voru þetta 3 atriði í einum þætti á einni viku – hvernig er þetta barnaefni talsett yfir höfuð!! Það var eitthvað verið að kvarta yfir Sveppa til að byrja með út af enskuslettum, held að það hafi lagast.
En er það ekki bara ljúft ef þetta er það helsta sem maður æsir sig yfir þessa dagana
