Dekurdýrin mín horfa á barnaefni á Stöð 2 á morgnana milli 7-7:45 meðan þau eru að klæða sig og borða morgunmat. Ég er svo sem ekkert brjálæðislega góð í íslensku en í síðustu viku voru 3 atriði sem pirruðu mig einstaklega!
Fyrst var það steypireiður sem synti um höfin – ítrekað sagði “Diego” sjáið steypireiðina, … steypireiðin syndir í kring um eyjuna… Já!
Næst var það Lúlla letidýr sem þurfti að bjarga svo að hún kæmist heim fyrir Valintínusardaginn. Þegar sólin var að setjast sagði hinn sami; við verðum að bjarga valintínusardeginum fyrir Lúllu letidýri – hvað ætlaði Lúlla annars að gera við valintínusardaginn????
Svo var það prinsinn sem kvartaði; þeir segja ,,efra og niðri” en ekki ,,efra og neðra” og samt er það fólk sem talar fyrir þetta !!!
Eins og ég sagði, þá voru þetta 3 atriði í einum þætti á einni viku – hvernig er þetta barnaefni talsett yfir höfuð!! Það var eitthvað verið að kvarta yfir Sveppa til að byrja með út af enskuslettum, held að það hafi lagast.
En er það ekki bara ljúft ef þetta er það helsta sem maður æsir sig yfir þessa dagana

2 comments
Comments feed for this article
mars 3, 2009 kl. 10:55 am
Hjúkkan
Já það er um að gera að fylgjast aðeins með hvað er í blessaða barnaefninu. Annars vildi ég að þetta væri líka aðalvandamálið hjá mér þessa dagana. Gullfoss og Geysir er vandamálið hjá mínum fjölskyldumeðlimum. Kallinn loksins orðinn hress, litli kútur mjög slappur um helgina og endaði með vökva í æð í nokkra tíma og núna er skvísan mín byrjuð að kasta upp. Fer þetta ekki bráðum að verða búið !!!
mars 3, 2009 kl. 12:48 pm
löggan
Dásamlegt ! Vonandi eruð þið búin að fá ykkar skammt í ár!