You are currently browsing the monthly archive for maí 2009.

Þetta er búinn að vera alveg ótrúlegur dagur. Hann byrjaði með atvinnuviðtali. Svo var ég á leiðinni í vinnuna þegar dóttirin hringdi og sagðist hafa fengið 9,2 á lokaprófi í stærðfræði. Þegar ég kom í vinnuna hringdi síminn minn aftur og mér boðin vinnan sem ég sóttist eftir. Og síðast en ekki síst fór sonurinn í ofnæmispróf og er laus við mjólkurofnæmið.

Geta dagarnir orðið betri?

Um leið og ég óska bóndanum og hennar fjölskyldu til hamingju með litlu snúlluna þá ætlaði ég að láta ykkur vita af því að ég ætla að fylgja henni og stjórnmálafræðingi eftir og bæta við einu “ellibarni” í haust ef allt fer að óskum :-)
Er komin ca.12/13 vikur og sett í nóvember, þannig að það er nokkuð ljóst að þessi hópur slær ekki slöku við!
Hvað er eiginlega langt síðan við höfum komið saman án óléttu eða brjóstagjafa (var það ekki bara á 1 árs fermingarafmælinu síðast :-) )
Kv. Löggan