Þetta er búinn að vera alveg ótrúlegur dagur. Hann byrjaði með atvinnuviðtali. Svo var ég á leiðinni í vinnuna þegar dóttirin hringdi og sagðist hafa fengið 9,2 á lokaprófi í stærðfræði. Þegar ég kom í vinnuna hringdi síminn minn aftur og mér boðin vinnan sem ég sóttist eftir. Og síðast en ekki síst fór sonurinn í ofnæmispróf og er laus við mjólkurofnæmið.

Geta dagarnir orðið betri?