… þegar uppþvottavélin á heimilinu bilar?
a) vaskar upp (hvernig á aftur að gera það)
b) hendir öllu óhreinu leirtaui og kaupir pappadiska
c) fer bara með fjölskylduna út að borða í öll mál?
-Löggan
Hér er ró og hér er friður, hér er gott að setjast niður, slappa af og blogga og bulla þar til þvottavélin er hætt að sulla...
… þegar uppþvottavélin á heimilinu bilar?
a) vaskar upp (hvernig á aftur að gera það)
b) hendir öllu óhreinu leirtaui og kaupir pappadiska
c) fer bara með fjölskylduna út að borða í öll mál?
-Löggan
9 comments
Comments feed for this article
júní 11, 2009 kl. 10:36 am
Þroskaþjálfinn
d) hendir leirtauinu í baðið með börnunum.
e) lætur hundana sleikja leirtauið eftir matinn.
júní 11, 2009 kl. 11:06 am
löggan
Já en ekki hvað? Ég er nú með tvo hunda sem myndu gjarnan taka þetta verkefni að sér – að láta sér ekki detta þetta í hug !!
júní 11, 2009 kl. 5:04 pm
kvenfjelagid
láta hundanna vinna fyrir sér, það er ekkert ókeypis í dag:)
kv húsfrúin
júní 12, 2009 kl. 8:40 am
Hjúkkan
Ég lenti í þessu um daginn……… rosalegt ástand. Vaskaði upp í 2 vikur. Mér fannst það allt í lagi fyrstu vikuna, bara róandi að standa við vaskinn og hlusta á bunandi vatnið. En eftir 2 vikur var ég alveg komin með nóg.
júní 12, 2009 kl. 8:41 am
Hjúkkan
Eitt sem ég er að spá í……… er bréfið komið til ykkar. Er farin að halda að ég sé ekki á listanum eða þá að þetta sé off.
júní 12, 2009 kl. 8:59 am
Þroskaþjálfinn
Ég hef ekki fengið neitt bréf og er satt að segja að detta úr allri stemningu varðandi þetta bekkjarmót.
júní 12, 2009 kl. 9:32 am
Neminn
Hvaða bölvaða stress er þetta í ykkur, þið vitið dagsetninguna og það er nóg, þið fáið ekkert að vita meira !! En ég get sagt ykkur það að þið náið að endurheimta stemmninguna, ég alla vega gerði það eftir allt fjandans vesenið sem var með valið á dagsetningunni.
En bréfið er komið inn á síðuna og ath hvort það rói ykkur e-ð!!!!
júní 12, 2009 kl. 9:52 am
Hjúkkan
Flott bréf hjá ykkur.
Við erum samt ekkert stressaðar. Langar bara að koma smá stemmningu í hópinn, sérstaklega þar sem búið var að ákveða annan dag sem nánast allir komust og svo var henni breytt snökklega. Væri gaman að vita hvort hinir í bekknum komist þessa helgi líka. Held líka að það séu ekki allir sem fari á síðuna okkar og viti kannski ekkert af breytingunni.
Nú er bara að vona að stemmarinn náist upp hjá þeim sem eru að detta úr stemmara
Ég er í stemmara og verð í stemmara. Skemmtilegt orð, stemmari
júní 12, 2009 kl. 1:21 pm
löggan
Bara nóg að stemmingin sé til staðar þegar maður mætir á svæðið. Eru það ekki bara Atli, Þórir og Jónatan sem hafa meldað að þeir komist ekki? Atli og Jónatan komast hvoruga helgina hvort sem er en veit ekki með Þóri. Aðrir hafa ekki sett út á þetta. Það er bara nefndin ræður – til þess var hún valin !!
)
Fínasta bréf hjá ykkur – sniðugt og skemmtilegt (þó svo að það bæti ekki nokkru við sem ekki var vitað fyrir