You are currently browsing the monthly archive for júlí 2009.

Til hamingju með daginn þroskaþjálfi og eigðu góðan dag:-). Hlakka til að hitta þig og þína fyrir vestan í næstu viku – hvenær á annars að leggja af stað þangað ? Við ætlum að koma grísunum fyrir í RVK og keyra þaðan, ekki alveg ákveðið hvaða dag; verðum í sambandi þegar nær dregur …..

kv. Löggan

Hvernig er það með ykkur, eruð þið búnar að grafa upp fermingarfötin fyrir fermingarmótið ?  Ég held að mamma hljóti að geyma mín á góðum stað en spurningin er bara hvort ég komist í þau ( sem ég reyndar efast um).  Má alltaf reyna að komast í jakkann.  Væri flott að mæta í rúskinsjökkunum , er það ekki Lögga :)   Það var samt ekki minn fermingarjakki, han var fjólublár, stórköflóttur. Gasalega smart :)

Druslaðist út í rigningunni í gær og “sló” rabbabaragarðinn hjá mér. Bjó svo til þessa fínu rabbabaraböku, a la Hjúkkan fyrir gestina mína. Þessi uppskrift er best of the best og mæli með því að þið farið í næstu garða (ef þið eigið ekki rabbabaragarð sjálfar) og nælið ykkur í nokkra stöngla og bakið :-) . Snilldin ein og slær alltaf í gegn!
-Löggan

Bóndinn er flottur í mogganum í dag. Þótti þó skrítið að lesa að þau hjónin búi við mikla “ómegð” svona miðað við að annars staðar í greininni stóð að reksturinn á fyrirtækjunum gengi vel :) Ég vona að blaðamaðurinn hafi ruglast á ómegð og barnmergð!