Bóndinn er flottur í mogganum í dag. Þótti þó skrítið að lesa að þau hjónin búi við mikla “ómegð” svona miðað við að annars staðar í greininni stóð að reksturinn á fyrirtækjunum gengi vel
Ég vona að blaðamaðurinn hafi ruglast á ómegð og barnmergð!

16 comments
Comments feed for this article
júlí 5, 2009 kl. 8:45 pm
kvenfjelagid
Já þetta er ekkert smá flott hjá þeim, ég er einmitt búin að styrkja bóndann 2 í þessari vesturferð minni:) Bara æðisleg búð.
júlí 6, 2009 kl. 8:33 am
kvenfjelagid
Hmm, ég hef alveg misst af þessu – svaf allan laugadaginn eftir keyrslu frá Bolungarvík um nóttina, ferðin var heldur styttri en hún átti að vera upphaflega. En það verður bara tekið á því á fermingarmótinu
júlí 6, 2009 kl. 8:50 am
Hjukkan
já þetta fór alveg fram hjá mér líka. Treysti á að þið hafið klippt þetta út úr blaðinu svo ég geti séð þetta hjá ykkur
júlí 7, 2009 kl. 8:32 am
kvenfjelagid
Las greinina í morgun, klaufalega orðað vægast sagt en mér sýnist á öllu að prófarkalestur sitji verulega á hakanum hjá fjölmiðlum þessa dagana
En sammála húsfrú, þetta er rosalega flott hjá þeim í búðinni, þarf samt að skoða betur á fermingarmóti.
Heyrði í bóndanum í gær, hress að vanda. Húsfrúin fékk nöfnu á laugardaginn þannig að nú er að sjá hvort að stubburinn minn láti það eftir henni að mæta á staðinn 5/11. Sérfræðingum greinir aðeins á um dagsetningar, ég var búin að reikna út 16/11, ljósan vildi fresta þessu um viku til 23/11 en tæknin segir 11/11, þannig að þetta þokast nær 5. …
Kv. Löggan
júlí 7, 2009 kl. 7:31 pm
kvenfjelagid
Æðislegt, nafnið mitt er alltaf að verða algengara og algengara enda fallegt nafn:)
Gaman verður að sjá hvað stubburinn ákveður að gera í sambandi við komudag:))
kv.Húsfrú
júlí 7, 2009 kl. 7:32 pm
kvenfjelagid
P.s hver var að keyra frá víkinn?
júlí 8, 2009 kl. 9:22 am
Hjúkkan
Ég gæti vel trúað að það hafi verið Löggan……….. Ekki var það ég amk.
júlí 8, 2009 kl. 9:47 am
kvenfjelagid
Hver spyr hver var að keyra frá víkinni
hehhee!
Það var ég. Fórum á fimmtudegi vestur og lögðum af stað til baka á miðnætti á föstudegi. Voprum að færa okkur um tjaldstæði og þá fór í sundur kapall sem tengir fellihýsið við bílinn þannig að við vorum algjörlega ljóslaus að aftan sem þýddi að við urðum að keyra að nóttu til (frábært !!)
Gleymi alltaf að setja inn nafn, kom alltaf sjálfkrafa einu sinni en ekki lengur. Finn heldur ekki þegar ég set inn færslu, þá gat maður alltaf hakað í nafnið en nú fæ ég alltaf upp eitthvað quick-press til þess að skrá færslur. Kannski er ég orðin gömul eða þarf að gefa mér tíma í að finna út úr þessu … (hvar er hægt að fá þolinmæði á góðu verði..)
-Löggan
júlí 9, 2009 kl. 9:43 am
Þroskaþjálfinn
Þolinmæðin fylgir frítt með þriðja barni
júlí 9, 2009 kl. 1:47 pm
Neminn
Hva, er ekki í lagi fyrir lögguna að fá sekt fyrir að keyra á ljóslausum bíl – ýtir bara á delete takkann mín kæra
Annars fór þessi frétt alveg fram hjá mér, um hvað var hún, að þau eigi fullt af fyrirtækjum en enga peninga, er það e-ð nýtt í dag!!!!!
júlí 13, 2009 kl. 8:01 am
löggan
Ó, er það hægt! Ég hefði þá ekkert átt að vera borga þessa 30.000 kr. sekt á föstudaginn sem maðurinn minn fékk fyrir að brosa í hraðamyndavél
(og svona svo ég vitni bara í Andrés önd: ###$$&%%/%$$##$%#….)
-Löggan
ps. búin að gefast upp á fermingarmótssíðunni, get ekki kommentað þar en frábært að sú danska sé búin að panta far og sé pottþétt á leiðinni til okkar
júlí 13, 2009 kl. 9:45 am
Hjukkan
Það er komin lausn á kommentavandanum. Kíktu á síðuna Lögga og kommetaðu jafn oft þar og hér
júlí 13, 2009 kl. 12:22 pm
löggan
Held bara áfram á kommenta og kommenta hér um allt og ekki neitt – ekkert vesen, engin lykilorð og staðfestingarorð – búin að vera í korter að koma inn athugasemd um ekki neitt á hinni síðunni
júlí 13, 2009 kl. 2:53 pm
Hjúkkan
Held það sé líka allt í lagi að hætta þar því við erum þær einu sem kommenta
Verum bara frekar hér undir “dulnöfnun”
júlí 13, 2009 kl. 8:53 pm
kvenfjelagid
Vá, allt í einu mikid um ad vera á sídunni…;)
Hlakkar til ad kikja á thetta hjá theim. Skilst ad thad verdi skyldumæting thar.:)
Sá fréttina af bóndanum, hún tók sig vel út á milli flottra innréttinga
Talandi um sektir, fékk sjálf stödumælasekt um daginn upp á 510 dkk, sem er um 12000 iskr…ekki gaman ad fá svoleidis mida i ruduna..;) en sjitt happens.
Er farin ad hlakka frekar mikid til ad kikja a ykkur og i vikina
síjú leiter…;)
kem til landsins 1. águst thannig ad ég hef sma tima á fagralandi
júlí 13, 2009 kl. 8:54 pm
kvenfjelagid
kv danska konan
(ef thad er einhver vafi