You are currently browsing the monthly archive for september 2009.
kv. Reykjavíkurdeildin
Mér finnst að kennarar eigi að fá orðu fyrir störf sín.
Helga K er með bekkjarafmæli og er þetta í fyrsta skipti sem hún býður öllum bekknum og það eru svo mikil læti og hávaði að ég á ekki til orð:) Og ekki nóg með það þá eru afmælin yfirleitt í tvo tíma en mér fannst við hæfi að hafa það í þrjá tíma núna!!!
Kennarinn þeirra hefur reyndar yfirleitt alltaf talað um að þetta sé “fjörugur” bekkur og erfitt að fá vinnufrið en ég held að henni sé alveg óhætt að segja hlutina eins og þeir eru, það er að þau eru KOLVITLAUS:)
Ég vil veita henni orðu fyrir hennar störf:)
Til hamingju með afmælið í gær Nemi ( mér finnst reyndar að það þurfi að fara uppfæra það nafn
). Vonandi áttiru góðan dag.
Eigum við ekki að fara að vera virkari hér aftur. Sumarfríið búið og allir komnir í rútíu aftur. Ég og fleiri kíkjum enn hér við
Það er svo gaman að heyra frá ykkur dúllurnar mínar …………..
