You are currently browsing the category archive for the 'Uncategorized' category.

kv. Reykjavíkurdeildin

Til hamingju með daginn þroskaþjálfi og eigðu góðan dag:-). Hlakka til að hitta þig og þína fyrir vestan í næstu viku – hvenær á annars að leggja af stað þangað ? Við ætlum að koma grísunum fyrir í RVK og keyra þaðan, ekki alveg ákveðið hvaða dag; verðum í sambandi þegar nær dregur …..

kv. Löggan

Druslaðist út í rigningunni í gær og “sló” rabbabaragarðinn hjá mér. Bjó svo til þessa fínu rabbabaraböku, a la Hjúkkan fyrir gestina mína. Þessi uppskrift er best of the best og mæli með því að þið farið í næstu garða (ef þið eigið ekki rabbabaragarð sjálfar) og nælið ykkur í nokkra stöngla og bakið :-) . Snilldin ein og slær alltaf í gegn!
-Löggan

En þar fæddist prinsessa í gær, um 3.300 gr og 52 cm og skv. SMS sem barst gullfalleg eins og pabbinn…
Óska Stjórnmálafræðingi og fjölskyldu til hamingju með snúlluna :-) , hlakka til að sjá þau í sumar.
-Löggan

Í hvaða mynd er þetta?

-Löggan

… þegar uppþvottavélin á heimilinu bilar?
a) vaskar upp (hvernig á aftur að gera það)
b) hendir öllu óhreinu leirtaui og kaupir pappadiska
c) fer bara með fjölskylduna út að borða í öll mál?

-Löggan

Og eigðu góðan dag
kv. Löggan

Um leið og ég óska bóndanum og hennar fjölskyldu til hamingju með litlu snúlluna þá ætlaði ég að láta ykkur vita af því að ég ætla að fylgja henni og stjórnmálafræðingi eftir og bæta við einu “ellibarni” í haust ef allt fer að óskum :-)
Er komin ca.12/13 vikur og sett í nóvember, þannig að það er nokkuð ljóst að þessi hópur slær ekki slöku við!
Hvað er eiginlega langt síðan við höfum komið saman án óléttu eða brjóstagjafa (var það ekki bara á 1 árs fermingarafmælinu síðast :-) )
Kv. Löggan

Gleðilegt sumar elskurnar og takk fyrir veturinn:)
kv. Húsfrúin

Nú fer mig að langa að hitta ykkur skvísur.

Eru landsbyggðartútturnar eitthvað á leiðinni í bæinn ??